Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Sjávarútvegur

Undirritunardagur

27. janúar 2026

Útgáfudagur

13. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 141/2026

27. janúar 2026

REGLUGERÐ

um (5.) breytingu á reglugerð nr. 860/2025, um leyfilegan heildarafla og veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2025/2026 og almanaksárið 2026.

1. gr.

Í töflu í 4. gr. reglugerðarinnar er gerð breyting, svohljóðandi:

Tegund Ráðlagður heildarafli Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar
Norsk-íslensk síld 83.291 83.291 4.414 78.877

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. og 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, 19. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 27. janúar 2026.

Hanna Katrín Friðriksson.

Hallveig Ólafsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 13. febrúar 2026

Tengd mál