Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Árnessýsla, Sveitarstjórnarmál
Undirritunardagur
22. febrúar 2022
Útgáfudagur
8. mars 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 280/2022
22. febrúar 2022
SAMÞYKKT
um stjórn Bláskógabyggðar.
I. KAFLI
Um skipan sveitarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélagsins.
1. gr. Skipan sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar er skipuð 7 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt kosningalögum.
2. gr. Sjálfstætt stjórnvald.
Bláskógabyggð er sjálfstætt stjórnvald, sem er stjórnað af lýðræðislega kjörinni sveitarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.
3. gr. Verkefni sveitarfélagsins.
Bláskógabyggð annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, sbr. og leiðbeinandi auglýsingu frá ráðuneyti sveitarstjórnarmála.
Bláskógabyggð vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum tíma.
Bláskógabyggð er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa hennar, enda sé það ekki falið öðrum að lögum.
II. KAFLI Um sveitarstjórn.
4. gr. Hlutverk sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með síðari breytingum, annarra laga og samþykkt þessari.
Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.
5. gr. Verkefni sveitarstjórnar.
Meðal verkefna sveitarstjórnar er:
- Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að fylgt sé viðeigandi reglum í störfum sveitarfélagsins.
- Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Að setja sveitarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða sveitarstjóra/framkvæmdastjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
- Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
- Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar sveitarfélagsins til lengri tíma.
- Að samþykkja og hafa eftirlit með gerð og framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga, sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
- Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Að setja sveitarfélaginu málstefnu skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Að móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú ár á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörunum sveitarfélagsins, sbr. 130. gr. a. sveitarstjórnarlaga.
6. gr. Ný sveitarstjórn tekur til starfa.
Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi sveitarstjórn umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum um kosningar til sveitarstjórna. Nýkjörin sveitarstjórn hefur einungis umboð til töku ákvarðana um málefni sveitarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur við störfum.
Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.
Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.
7. gr. Kjör oddvita og varaoddvita.
Á fyrsta fundi kýs sveitarstjórn oddvita og einn varaoddvita. Skulu þeir kjörnir til eins árs í senn, að öðrum kosti skal kjörtímabil þeirra vera hið sama og sveitarstjórnar.
Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið sama á við ef oddviti eða varaoddviti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi. Tilkynna skal kosningu oddvita og varaoddvita til ráðuneytis þegar að því loknu.
Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meiri hluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meiri hluta atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Þegar að lokinni kosningu oddvita skal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti og oddvita.
III. KAFLI Fundir sveitarstjórnar og fundarsköp.
8. gr. Fundir sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar heldur reglulega fundi sveitarstjórnar tvisvar sinnum í mánuði. Í upphafi hvers kjörtímabils skal sveitarstjórn ákveða fundardag, fundartíma og staðsetningu reglubundinna funda.
Aukafundi skal halda þegar oddviti eða sveitarstjóri/framkvæmdastjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur sveitarstjórnarfulltrúa óskar þess.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar er heimilt að fella niður reglulegan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar er heimilt að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar vegna sumarleyfis.
9. gr. Boðun sveitarstjórnarfunda.
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri boðar fundi í samráði við oddvita sveitarstjórnar.
Fundarboð skal berast sveitarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.
Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast sveitarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki síðar en sólarhring fyrir fund.
Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind. Heimilt er að senda fundarboð og fundargögn á rafrænu formi.
10. gr. Dagskrá sveitarstjórnarfundar.
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri semur dagskrá sveitarstjórnarfundar í samráði við oddvita og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:
- Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar oddvita sveitarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarstjórnar, svo og ráðningu sveitarstjóra/framkvæmdastjóra og helstu stjórnendur sveitarfélagsins og endurskoðenda þess.
- Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
- Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá.
- Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og sveitarstjóri/framkvæmdastjóri eða oddviti ákveða að taka á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá.
Sveitarstjórnarfulltrúi sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það sveitarstjóra/framkvæmdastjóra skriflega tveimur sólarhringum fyrir fund til þess að unnt sé að taka það á dagskrá.
11. gr. Tilkynning til íbúa um fundi sveitarstjórnar.
Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær sveitarstjórnarfundir eru haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum sveitarfélagsins með tryggum hætti á heimasíðu sveitarfélagsins.
Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með opinberri auglýsingu eða með auglýsingu á vefsíðu sveitarfélagsins um fyrirhugaða fundi sveitarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um sveitarstjórnarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.
12. gr. Opnir fundir sveitarstjórnar.
Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Oddviti eða sveitarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.
Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélagsins séu viðstaddir.
13. gr. Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Sveitarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur sveitarstjórnarmanna sé viðstaddur á fundi.
Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
14. gr. Þátttaka í fundi með rafrænum hætti.
Sveitarstjórnarmönnum og nefndarmönnum í nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins er heimilt að taka þátt í fundi með rafrænum hætti, séu þeir staddir í Bláskógabyggð eða í erindagjörðum innanlands á vegum sveitarfélagsins. Fer um framkvæmd slíkra funda skv. leiðbeiningum ráðherra sveitarstjórnarmála, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
15. gr. Tvær umræður í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:
- Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
- Staðfestingu ársreiknings.
- Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða meiri hluta þess.
- Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.
Þá skal sveitarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir.
16. gr. Fundarsköp og ritun fundargerða.
Við ritun fundargerða sveitarstjórnar skal farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórna, sbr. auglýsingu þess efnis nr. 1181/2021, sem settar hafa verið samkvæmt 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
Meginreglur fundarskapa skulu vera eftirfarandi:
-
Fundarstjórn.Oddviti
stjórnar
umræðum
á
fundum
sveitarstjórnar.
Hann
setur
fund,
kannar
lögmæti
hans,
stjórnar
umræðum
og
afgreiðslu
mála
og
slítur
fundi
þegar
dagskrá
hans
er
tæmd.
Hann
sér
um
að
fundargerðir
séu
færðar
og
að
allar
tillögur
og
ályktanir
séu
rétt
og
nákvæmlega
bókaðar,
svo
og
hverja
afgreiðslu
þær
hljóta.
Oddviti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum sveitarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar sveitarstjórnar. -
Vald
oddvita.Skylt
er
sveitarstjórnarmanni
að
lúta
valdi
oddvita
í
hvívetna
varðandi
það
að
gætt
sé
góðrar
reglu.
Ef sveitarstjórnarmaður ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal oddviti víta hann. Ef sveitarstjórnarmaður er víttur tvisvar á sama fundi getur oddviti lagt til við sveitarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
Ef sveitarstjórnarmaður hlýðnast ekki úrskurði oddvita eða almenn óregla kemur upp á fundi skal oddviti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
Ef áheyrandi á sveitarstjórafundi raskar fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal.
Leyfi oddvita þarf til að taka myndir í fundarsal sveitarstjórnar. - Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um nema sveitarstjórn eða oddviti ákveði að önnur röð skuli höfð. Oddviti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra sveitarstjórnarmanna þau afbrigði.
- Málfrelsi sveitarstjóra/framkvæmdastjóra.Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn.
-
Málfrelsi.
Sveitarstjórnarmaður
hefur
málfrelsi,
tillögurétt
og
atkvæðisrétt
á
fundum
sveitarstjórnar.
Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða sveitarstjóra/framkvæmdastjóra eða framsögumann svo og sveitarstjórnarmann sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður oddviti í hvaða röð þeir tala.
Sveitarstjórnarmaður skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað. -
Ávarp
ræðumanns.
Sveitarstjórnarmaður
skal
beina
máli
sínu
til
oddvita.
Sveitarstjórnarmaður skal ávarpa einstaka sveitarstjórnarmenn með fullu nafni.
Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
Ekki má lesa upp prentað mál nema oddviti leyfi. - Hve oft má tala.Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó sveitarstjórnarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri hefur óbundið málfrelsi.
- Ræðutími. Ef oddviti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarfulltrúi kveður sér hljóðs.
-
Tillögur
og
afgreiðsla.Sveitarstjórnarmaður
getur
borið
fram
breytingartillögu,
viðaukatillögu,
frávísunartillögu
eða
frestunartillögu
við
hvert
það
mál
sem
til
umræðu
er
á
fundi.
Slíkar
tillögur
skulu
vera
skriflegar.
Oddviti
ákveður
í
hvaða
röð
og
með
hvaða
hætti
slíkar
tillögur
eru
teknar
til
afgreiðslu
í
samræmi
við
almennar
reglur
um
fundarsköp.
Oddviti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað. - Réttur til bókunar.Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
-
Atkvæðagreiðsla.
Atkvæðagreiðsla
á
sveitarstjórnarfundi
fer
að
jafnaði
fram
með
handauppréttingu.
Sveitarstjórnarmaður
greiðir
atkvæði
úr
sæti
sínu.
Oddviti
biður
þá
sveitarstjórnarmenn
sem
samþykkja
mál
að
rétta
upp
hönd
sína.
Að
því
búnu
leitar
oddviti
mótatkvæða
með
sama
hætti.
Loks
skýrir
oddviti
frá
úrslitum
atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð.
Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og sveitarstjórn samþykkir. - Kosningar. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við oddvitakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
17. gr. Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.
Um hæfi sveitarstjórnarmanna, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í sveitarstjórnarlögum. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.
Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélagsins.
Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.
18. gr. Varamenn í sveitarstjórn.
Varamenn taki sæti í þeirri röð sem þeir voru kosnir til sveitarstjórnar. Ef sveitarstjórn hefur verið kjörin bundinni hlutfallskosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir, þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast.
IV. KAFLI Réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
19. gr. Skyldur sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmanni ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.
Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.
Hverjum sveitarstjórnarmanni er skylt að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar.
Sveitarstjórnarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
20. gr. Réttur sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.
Sveitarstjórnarmaður á rétt á að tekið verði á dagskrá sveitarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.
Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.
Sveitarstjórnarmenn hafa málfrelsi á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í fundarsköpum sveitarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.
Vilji sveitarstjórnarmaður ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.
21. gr. Aðgangur að gögnum.
Vegna starfa sinna í sveitarstjórn á sérhver sveitarstjórnarmaður rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélagsins og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Sveitarstjórnarmaður skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.
Sveitarstjórnarmaður skal beina beiðni sinni um gögn til sveitarstjóra/framkvæmdastjóra og skal hann afhenda afrit af þeim gögnum sem falla að upplýsingarétti almennings innan fimm virkra daga frá móttöku beiðninnar. Tiltaka skal í beiðninni hvaða gögnum óskað er eftir og snerta viðkomandi málefni. Ef gögn eru undanþegin upplýsingarétti almennings má ekki taka afrit af þeim gögnum og skal sveitarstjórnarmaður kynna sér slík gögn á skrifstofu sveitarfélagsins, en óheimilt er að fara með þau af skrifstofu.
Ef beiðni sveitarstjórnarmanns varðar viðkvæma persónulega hagi einstaklings sem ekki er til umfjöllunar í sveitarstjórn, er heimilt að neita um afhendingu gagna og upplýsinga.
22. gr. Siðareglur og góðir starfshættir.
Sveitarstjórnarmaður skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem sveitarstjórn setur sér, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
23. gr. Lausn frá störfum.
Telji sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann óskað eftir því við sveitarstjórn að hún:
- létti af honum störfum eða
- veiti honum lausn úr sveitarstjórn um tiltekinn fyrir fram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Þegar sveitarstjórnarmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun skal tekin áður en sveitarstjórnarmaður flytur um stundarsakir. Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt 2. mgr. missir sveitarstjórnarmaður kjörgengi við skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi og getur ekki tekið aftur sæti í sveitarstjórn á kjörtímabilinu taki hann búsetu í sveitarfélaginu aftur.
Missi sveitarstjórnarmaður kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn. Ef sveitarstjórnarmaður missir fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
24. gr. Boðun varamanna.
Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í sveitarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur sveitarstjórnarmaður krafist þess að umræðu og afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra sveitarstjórnarfulltrúa greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn lögbundnum afgreiðslutíma máls.
Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í sveitarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og óska eftir því að varamaður verði boðaður. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar sé um það að ræða.
Þegar fyrirséð er að aðalmaður í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr. í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með næsta fundi.
Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi.
25. gr. Þóknun o.fl.
Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundarstaðar sveitarstjórnar skal sveitarstjórnarmaður fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar.
Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr.
Sveitarstjórnarmaður má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar greinar.
26. gr. Réttindi og skyldur varamanna.
Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna, eiga einnig við um varamenn þegar þeir taka sæti í sveitarstjórn.
V. KAFLI Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en byggðarráð.
27. gr. Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir teljast fastanefndir sveitarstjórnar.
Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og sveitarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.
Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitarstjórn sætti að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.
28. gr. Kosning og kjörgengi.
Kosningar í fastanefndir sveitarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélagsins, nefndir til að fara með einstök verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að, skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði 44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi nefnd.
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.
29. gr. Erindisbréf.
Sveitarstjórn staðfestir erindisbréf fyrir nefndir, ráð og stjórnir þar sem kveðið er á um hlutverk, valdsvið og starfshætti þeirra í samræmi við lög, reglugerðir og almennar samþykktir sveitarstjórnar.
30. gr.
Valdsvið
nefnda
og
framsal
sveitarstjórnar
til
fastanefnda
á
valdi
til
fullnaðarafgreiðslu
mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið í samþykkt þessari eða með sérstökum viðauka við hana, að fela kjörnum nefndum sem taldar eru upp í 40. gr. samþykktar þessarar að afgreiða, án staðfestingar sveitarstjórnar, mál á verksviði þeirra, ef:
- lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
- þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og
- þau víkja ekki frá stefnu sveitarstjórnar í veigamiklum málum.
Þriðjungur fulltrúa í nefnd, ráði eða stjórn sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu máls, sbr. 1. mgr., getur farið fram á að sveitarstjórn eða viðkomandi nefnd skv. samþykktum þessum taki ákvörðun í máli.
Aðili máls skal beina kröfu um endurupptöku máls sem hefur verið fullnaðarafgreitt á grundvelli 2. mgr. til sveitarstjórnar, sbr. 49. gr. samþykktar þessarar.
Við birtingu ákvörðunar skal kynnt að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr. sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gætt að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
31. gr. Afgreiðsla á fundargerðum.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir sveitarstjórn til kynningar eða afgreiðslu.
Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar eru lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreiddar með formlegum hætti.
Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér skal lögð fyrir sveitarstjórn eftir því sem fyrir er mælt í samþykkt um stjórn sveitarfélagsins.
32. gr. Fundir nefnda og ályktunarhæfi.
Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.
Nefndum er skylt að verða við ósk nefndarmanns um opinn fund, að öllu leyti eða hluta, ef tillaga um slíkt er samþykkt mótatkvæðalaust á næsta nefndarfundi á undan, svo fremi lög eða eðli máls hamli því ekki.
Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.
33. gr. Fundarstjórn og fundargerðir.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.
Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar.
34. gr. Varamenn.
Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.
Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.
35. gr. Boðun varamanna.
Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.
Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju, ella skipar sveitarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.
Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við getur átt.
36. gr. Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.
Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í sveitarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta óskað eftir því við sveitarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.
Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefnalegar ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur sveitarstjórnarmaður krafist þess að nefnd verði endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins skal kjósa alla fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.
Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.
37. gr. Áheyrnarfulltrúar.
Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í viðkomandi nefnd.
38. gr. Þóknun.
Sveitarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati sveitarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur. Sveitarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélagsins.
39. gr. Önnur réttindi og skyldur.
Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.
Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.
40. gr. Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem við getur átt.
Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélaginu væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi sveitarfélagsins í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitarstjórnarinnar um þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi viðkomandi lögaðila.
41. gr. Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.
A. Fastanefndir:
-
Kjörstjórn við sveitarstjórnar- og alþingiskosningar. Kjósa skal þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Kjörstjórnir skipta með sér verkum og fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt ákvæðum kosningalaga. Enn fremur kýs sveitarstjórn undirkjörstjórnir fyrir:
- Kjördeild I. Biskupstungur. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
- Kjördeild II. Laugardalur og Þingvallasveit. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.
- Skólanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Skólanefnd fer með málefni grunnskóla skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og leikskóla skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. Málefni bókasafna, sem rekin eru af sveitarfélaginu, falla undir skólanefnd.
- Umhverfisnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Auk þess að vinna að fegrun umhverfis er nefndinni ætlað að vinna að náttúruvernd, svo sem varðveislu náttúruminja og annarra menningarlegra verðmæta í Bláskógabyggð. Þá fer nefndin jafnframt með málefni gróðurverndar og hlutverk náttúruverndarnefndar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
-
Fjallskilanefndir.Fjallskilanefnd fer með fjallskilamál skv. lögum um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986 og fjallskilasamþykkt fyrir Árnessýslu austan vatna nr. 711/2012 og fjallskilasamþykkt fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr. 733/2012.
- Þingvallasveit. Þrír aðalmenn og þrír til vara.
- Laugardalur. Þrír aðalmenn og þrír til vara.
- Biskupstungur. Fimm aðalmenn og fimm til vara.
- Menningarmálanefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndinni er ætlað að fara með menningarmál. Skal nefndin starfa í nánum tengslum við hin frjálsu félög í sveitarfélaginu og stuðla þannig að samþættingu menningarstarfs meðal íbúa Bláskógabyggðar.
- Æskulýðsnefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndinni er ætlað að fara með æskulýðsmál. Skal nefndin starfa í nánum tengslum við hin frjálsu félög í sveitarfélaginu og stuðla þannig að samþættingu æskulýðs- og tómstundastarfs meðal íbúa Bláskógabyggðar.
- Atvinnu- og ferðamálanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndinni er ætlað að styrkja og efla þær atvinnugreinar sem fyrir eru í Bláskógabyggð og stuðla að nýsköpun í atvinnu- og ferðamálum.
- Framkvæmda- og veitunefnd. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Framkvæmda- og veitustjórn fer með stjórn Bláskógaveitu þ.e. þeirra vatnsveitna (kalt og heitt vatn) sem Bláskógabyggð rekur í umboði sveitarstjórnar í samræmi m.a. við lög um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og orkulög nr. 58/1967, málefni fráveitu, stjórn Bláskógaljóss, málefni eignasjóðs, og málefni sem varða framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.
- Samráðshópur um málefni aldraðra í Bláskógabyggð. Fimm fulltrúar og fimm til vara.Sveitarstjórn skipar einn fulltrúa og einn til vara. Félög eldri borgara í Biskupstungum og á Laugarvatni skipa hvort um sig tvo fulltrúa og tvo til vara.
- Ungmennaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara á aldrinum 14 til 25 ára að fengnum tilnefningum skv. samþykkt fyrir ungmennaráð Bláskógabyggðar, dags. 10. desember 2015.
- Jafnréttisnefnd. Sveitarstjórn fer með jafnréttismál skv. lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020.
B. Stjórnir og samstarfsnefndir:
- Aðalfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Tveir fulltrúar og tveir til vara.
- Héraðsnefnd Árnesinga bs. Héraðsnefnd Árnesinga starfar samkvæmt sérstökum samþykktum byggðasamlagsins. Nefndin fer m.a. með málefni Brunavarna Árnessýslu, almannavarna Árnessýslu skv. 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008, Listasafns Árnesinga, Byggðasafns Árnesinga, Tónlistarskóla Árnesinga og Héraðsskjalasafns Árnesinga. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar skipar tvo aðalmenn og tvo til vara í fulltrúaráð.
- Stjórn Landgræðslufélags Biskupstungna. Sveitarstjórn skipar einn fulltrúa og annan til vara.
- Skipulagsnefnd uppsveita. Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur skipa sameiginlega skipulagsnefnd uppsveita skv. sérstökum samningi þar að lútandi. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar skipar einn aðalmann og annan til vara í nefndina. Nefndin fer með skipulagsmál skv. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og byggingarmál skv. 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
- Stjórn Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. Ásahreppur, Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur eiga aðild að byggðasamlaginu. Aðildarsveitarfélögin tilnefna hvert um sig einn aðalmann og einn varamann í stjórn byggðasamlagsins að afloknum sveitarstjórnarkosningum og er kjörtímabil það sama og sveitarstjórnar. Stjórnarfulltrúar skulu vera aðalmenn í sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaganna. Stjórnin annast daglegan rekstur byggðasamlagsins. Framsals- og valdheimildir til byggingarfulltrúa fara eftir ákvæðum 48. gr. samþykktar þessarar og samþykktar fyrir byggðasamlagið Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs.
- Almannavarnanefnd Árnessýslu. Sveitarstjórn skipar einn aðalmann og annan til vara skv. 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008 í sameiginlega almannavernd í Árnessýslu.
-
Skóla-
og
velferðarþjónusta
Árnesþings
bs.
Sveitarstjórn
Bláskógabyggðar
kýs
einn
fulltrúa
og
annan
til
vara
til
setu
í
stjórn
byggðasamlagsins,
nefnd
sveitarstjóra
og
oddvita
(NOS),
samkvæmt
samþykktum
byggðasamlagsins.
Fulltrúi Bláskógabyggðar í stjórn (NOS) hefur umboð til að taka þátt í skipun í sjö manna sameiginlega skólaþjónustu- og velferðarnefnd á starfssvæði skóla- og félagsþjónustu sveitarfélaganna í samræmi við ákvæði samþykkta byggðasamlagsins og á grundvelli 7. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, 21. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla og 40. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla. Skóla- og velferðarþjónustusvæðið heitir Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings og nefndin skólaþjónustu- og velferðarnefnd Árnesþings.
Fulltrúar í skólaþjónustu- og velferðarnefnd Árnesþings eru sjö auk jafnmargra varamanna og koma þeir úr Sveitarfélaginu Ölfusi, Hveragerðisbæ, Hrunamannahreppi, Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Grímsnes- og Grafningshreppi og Flóahreppi.
Skólaþjónustu- og velferðarnefnd Árnesþings fer með stjórn sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla og félagsþjónustu sveitarfélagsins skv. lögum um leikskóla nr. 90/2008, lögum um grunnskóla nr. 91/2008, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, málefni aldraðra skv. lögum nr. 125/1999 og málefni fatlaðs fólks skv. lögum nr. 38/2018. Þá fer nefndin með áfengisvarnir skv. lögum nr. 75/1998 og barnaverndarmál skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002. Nefndin fer með önnur málefni skv. erindisbréfi sem henni er sett. - Bergrisinn bs. Sveitarfélagið Ölfus, Hveragerðisbær, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Flóahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur reka byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks á Suðurlandi skv. sérstökum samþykktum. Sveitarfélögin mynda sameiginlegt þjónustusvæði á Suðurlandi um þjónustu við fatlað fólk í samræmi við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Stjórn þjónustusvæðisins er skipuð þremur fulltrúum, þ.e. einum frá hverju félagsþjónustusvæði. Stjórn Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. (NOS) skipar einn fulltrúa í stjórn þjónustusvæðisins og annan til vara. Framkvæmd þjónustusamningsins er í höndum þriggja manna þjónusturáðs og skipar NOS einn fulltrúa í þjónusturáðið sem skal vera forstöðumaður Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. Sveitarstjórn skipar fjóra fulltrúa á aðalfund Bergrisans bs. og fjóra til vara.
- Oddvitanefnd uppsveita Árnessýslu. Oddviti sveitarstjórnar er aðalmaður og varaoddviti til vara.
- Seyrustjórn (stjórn samstarfsverkefnis um seyrurekstur). Einn fulltrúi og einn til vara.
- Aðalfundur SASS. Fjórir fulltrúar og fjórir til vara.
- Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Fjórir fulltrúar og fjórir til vara.
- Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands. Einn fulltrúi og einn til vara.
- Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands. Einn fulltrúi og einn til vara.
- Öldungaráð. Skipa skal í öldungaráð á grundvelli 2. mgr. 38. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, með hliðsjón af 8. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra. Skipa skal fulltrúa samkvæmt sérstöku samkomulagi við önnur sveitarfélög vegna samstarfs um öldrunarþjónustu.
42. gr. Verkefnabundnar nefndir.
Sveitarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.
VI. KAFLI
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.
43. gr. Ráðning sveitarstjóra/oddvita sem framkvæmdastjóra.
Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra/framkvæmdastjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins. Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra/framkvæmdastjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin. Ráðningartími sveitarstjóra/framkvæmdastjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil sveitarstjórnar.
44. gr. Hlutverk oddvita.
Ef ekki er ráðinn sérstakur sveitarstjóri/framkvæmdastjóri sveitarfélagsins fer oddviti með daglega stjórn sveitarfélagsins, undirbýr fundi sveitarstjórnar og byggðarráðs, annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og byggðarráðs og annarra málefna sveitarfélagsins, svo sem bréfaskipti, gjaldheimtu og reikningshald.
Laun oddvita skulu ákveðin sérstaklega af sveitarstjórninni. Skulu launin endurskoðuð reglulega í samræmi við almennar launabreytingar í landinu.
Ef um er að ræða sérstakar, umfangsmiklar og tímabundnar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem oddviti sér um, á hann rétt á sérstakri þóknun fyrir þau störf samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Láti oddviti í té húsnæði og aðra aðstöðu vegna skrifstofuhalds og fundarhalda í þágu sveitarfélagsins á hann rétt á sérstakri greiðslu fyrir þá þjónustu.
45. gr. Hlutverk sveitarstjóra/framkvæmdastjóra.
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu á fundum nefnda og ráða sem sveitarstjórn skipar.
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda sveitarstjórnar séu vel undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að ákvarðanir þær sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar og annarra nefnda komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið það öðrum.
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.
Sveitarstjóri/framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.
46. gr. Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.
Sveitarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá Bláskógabyggð, skv. skipuriti þess, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og sviðsstjóra framkvæmda- og veitusviðs, að fenginni tillögu sveitarstjóra og auk þess yfirmenn stofnana og fyrirtækja í eigu sveitarfélagsins sem heyra beint undir sveitarstjóra. Sveitarstjórn veitir þessum sömu starfsmönnum lausn frá störfum hvort heldur er fullnaðarlausn eða tímabundna.
47. gr. Um ráðningu annarra starfsmanna.
Sviðsstjórar skv. 46. gr. ráða stjórnendur deilda og stofnana sem undir þá heyra og veita þeim lausn frá störfum.
Stjórnendur stofnana og deilda ráða starfsmenn sem undir þá heyra og veita þeim lausn frá störfum.
48. gr. Framsal sveitarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið í samþykkt þessari að fela einstaka starfsmönnum sveitarfélagsins fullnaðarafgreiðslu mála á sama hátt og með sömu skilyrðum og nefnd eru í 30. gr.
Sveitarstjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu starfsmannsins en viðkomandi nefndir hafa eftirlit með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þeirra.
Starfsmanni er alltaf heimilt að vísa ákvörðun skv. 1. mgr. til viðkomandi nefndar eða sveitarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.
Á grundvelli heimildar 93. og 94. gr. sveitarstjórnarlaga er byggingarfulltrúa falið að afgreiða án staðfestingar sveitarstjórnar, mál sem falla undir lög um mannvirki nr. 160/2010 með síðari breytingum og skilgreind eru sem verkefni byggingarnefnda í lögunum. Undanskildar frá slíkum afgreiðslum eru nafngiftir á götum, vegum og torgum.
Byggingarfulltrúa er falið að taka ákvörðun um að grenndarkynna mál í neðangreindum málstilvikum þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. Við ákvörðun sína skal byggingarfulltrúi gæta þess að uppfylla ákvæði laga og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra, úthlutunar- og skipulagsskilmála sem og samþykktir sveitarfélagsins um byggingarmál, enda sé tryggt að byggingarnar séu innan nýtingarhlutfalls sveitarfélagsins skv. aðalskipulagi og skerði ekki hagsmuni aðliggjandi lóðarhafa. Ef athugasemdir berast við grenndarkynningu skal málinu vísað til skipulagsnefndar til afgreiðslu að grenndarkynningartíma loknum en ef engar athugasemdir berast er byggingarfulltrúa heimilt að gefa út byggingarleyfi án frekari aðkomu skipulagsnefndar eða sveitarstjórnar:
- Viðbyggingar við sumarhús þar sem útliti er ekki breytt og sama hæð eða lægri er á viðbyggingu og því húsi sem fyrir er. Viðbygging er innan byggingarreits og að lágmarki 10 metrar eru frá útvegg viðbyggingar að lóðarmörkum. Ef vafi leikur á lóðarmörkum skal byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulagsnefndar.
- Viðbyggingar við íbúðarhús þar sem útliti er ekki breytt og sama hæð eða lægri er á viðbyggingu og því húsi sem fyrir er. Viðbygging er innan byggingarreits og að lágmarki 10 metrar eru frá útvegg viðbyggingar að lóðarmörkum. Ef vafi leikur á lóðarmörkum skal byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulagsnefndar.
- Viðbyggingar við landbúnaðarbyggingar þar sem útliti er ekki breytt og sama hæð eða lægri er á viðbyggingu og því húsi sem fyrir er. Ef vafi leikur á lóðarmörkum eða landamörkum skal byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulagsnefndar.
-
Eitt lítið hús, s.s. gestahús, bílskúr (viðbygging eða stakstæður), vinnustofa o.þ.h. á lóð þar sem þegar er til staðar íbúðar- eða frístundahús, enda sé um að ræða hús sem er hluti þeirrar eignar sem fyrir er á lóðinni og eftirfarandi kröfur eru uppfylltar:
- Húsið er innan byggingarreits eða innan 10 metra frá lóðarmörkum.
- Flatarmál hússins sé að hámarki 40 m² eða skv. aðalskipulagi sveitarfélagsins.
- Mesta hæð á þaki húss sé 3,5 metrar, mælt frá yfirborði jarðvegs.
Byggingarfulltrúi getur ávallt vísað máli til skipulagsnefndar til fullnaðarafgreiðslu, s.s. ef lög, reglur, skipulag eða stefna eru ekki skýr eða ljóst er að ákvörðun er stefnumarkandi. Ef ætla má að aðili máls muni ekki sæta niðurstöðu byggingarfulltrúa skal byggingarfulltrúi vísa málinu til afgreiðslu skipulagsnefndar.
Að öðru leyti er vísað í samþykkt fyrir Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs. Um efni viðaukans vísast til fylgiskjals með auglýsingu nr. 35/2022 um staðfestingu samþykktar fyrir byggðasamlagið Umhverfis- og tæknisvið uppsveita bs.
49. gr. Endurupptaka mála.
Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá sveitarstjórn, nefnd eða embættismanni ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.
Beiðni um endurupptöku máls skal beina til sveitarstjórnar og verður að jafnaði að koma fram áður en þrír mánuðir eru liðnir frá því að málsaðila er tilkynnt um afgreiðslu.
Ef endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur sveitarstjórn ákvörðun um málsmeðferð.
50. gr. Þagnarskylda starfsmanna.
Starfsmenn Bláskógabyggðar og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
51. gr. Um starfskjör og réttindi starfsmanna.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna Bláskógabyggðar fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.
VII. KAFLI Fjármál sveitarfélagsins.
52. gr. Fjárstjórnarvald sveitarstjórnar.
Einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar undantekningar með lögum:
- staðfestingu ársreiknings,
- fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
- fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
- viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
- lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
- sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
- álagningu skatta og gjalda,
- ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.
53. gr. Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.
Sveitarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir. Framkvæmdastjóri/sveitarstjóri leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.
Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.
Sveitarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.
54. gr. Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.
Ákvörðun sem sveitarstjórn tekur skv. 51. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu sveitarfélagsins á fjárhagsáætlunum.
Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í þegar samþykktri fjárhagsáætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar viðaukans.
Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitarstjórnarinnar.
55. gr. Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum, sbr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga og ákvæði reglugerðar nr. 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
56. gr. Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga.
Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.
Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.
Um heimildir Bláskógabyggðar til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr. sveitarstjórnarlaga.
57. gr. Ársreikningur.
Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri reikningsskilavenju.
Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af byggðarráði og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.
Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.
Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.
58. gr. Endurskoðun ársreikninga.
Sveitarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr. sveitarstjórnarlaga.
VIII. KAFLI
Samvinna við önnur sveitarfélög og samningar um starfrækslu verkefna.
59. gr. Samstarf sveitarfélaga.
Sveitarstjórn er heimilt að eiga samstarf um starfrækslu verkefna við annað eða önnur sveitarfélög og framselja vald til töku ákvarðana um rétt og skyldu manna. Fer um slíkt samstarf skv. IX. kafla sveitarstjórnarlaga og þeim sérlögum sem við eiga.
60. gr. Samningar við einkaaðila.
Sveitarstjórn er heimilt að gera samninga við einkaaðila um framkvæmd á þjónustu og öðrum verkefnum fyrir sveitarfélagið. Skulu ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar meginreglur stjórnsýsluréttar, gilda um þá stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér að annast.
IX. KAFLI Samráð við íbúa – Þátttökulýðræði.
61. gr. Réttur íbúa til áhrifa á stjórn sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn skal leitast við að tryggja íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess möguleika til að taka þátt í og hafa áhrif á stjórn sveitarfélagsins og undirbúning stefnumótunar þess.
62. gr. Upplýsingar um málefni sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn skal upplýsa íbúa sína um áætlanir sem sveitarfélagið hefur til meðferðar og ákvörðunar og varða þá með almennum hætti. Sama gildir um einstök mál sem hafa verulega þýðingu fyrir sveitarfélagið. Sveitarstjórn skal leitast við að veita íbúum upplýsingar um áhrif slíkra mála og áætlana á þjónustu sveitarfélagsins til skemmri og lengri tíma, fjárhag sveitarfélagsins, umhverfi og markmið sem að er stefnt.
Sveitarstjórn skal leitast við að upplýsa með almennum hætti um þær leiðir og aðferðir sem hún notar til samráðs við íbúa.
Sveitarstjórn skal enn fremur leitast við að íbúar sveitarfélagsins fái með reglulegum hætti upplýsingar um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög.
Til að ná ofangreindum markmiðum skal miða við að upplýsingagjöf fari fram á heimasíðu sveitarfélagsins, með útgáfu fréttabréfs, fundum í tengslum við málefni eða með öðrum hætti sem gagnast til upplýsingagjafar.
63. gr. Borgarafundir.
Sveitarstjórn ákveður hvort haldinn skuli borgarafundur í sveitarfélaginu, sbr. þó 2. mgr.
Ef minnst 10% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska borgarafundar skal sveitarstjórn verða við því svo fljótt sem unnt er.
Til borgarafundar skal boða með opinberri auglýsingu ekki síðar en 10 dögum fyrir fundardag. Í auglýsingu skulu koma fram upplýsingar um form fundar, þar á meðal hvort þátttakendum gefist tækifæri til að taka þátt í umræðum og leggja fram fyrirspurnir og tillögur.
Eigi atkvæðagreiðsla að fara fram á fundi skal það tiltekið í fundarboði ásamt þeirri tillögu sem greiða á atkvæði um.
Ályktanir almennra borgarafunda eru ekki bindandi fyrir sveitarstjórn.
Sveitarstjórn skal halda árlega a.m.k. einn borgarafund til kynningar á ársreikningi sveitarfélagsins þegar hann liggur fyrir endanlega samþykktur af sveitarstjórn.
64. gr. Íbúaþing.
Sveitarstjórn getur haldið íbúaþing. Niðurstöður íbúaþinga eru ekki bindandi fyrir sveitarstjórn.
65. gr. Íbúakosningar.
Sveitarstjórn ákveður hvort fram skuli fara almenn atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélagsins um einstök málefni þess, sbr. þó 66. gr. samþykktar þessarar.
Til atkvæðagreiðslu skv. 1. mgr. skal sveitarstjórn opinberlega kynna þá tillögu sem borin verður undir atkvæði og þær upplýsingar sem kjósendum eru nauðsynlegar til að geta tekið til hennar upplýsta afstöðu.
Rétt til þátttöku í atkvæðagreiðslu skv. 1. mgr. eiga þeir sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna. Sveitarstjórn skal gera kjörskrá fyrir atkvæðagreiðsluna. Um gerð hennar og auglýsingu gilda ákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna.
Atkvæðagreiðsla skal vera leynileg og atkvæðisréttur jafn.
Atkvæðagreiðsla skv. þessari grein, sem og 70. gr., er ráðgefandi nema sveitarstjórn ákveði að hún skuli binda hendur hennar til loka kjörtímabils. Í auglýsingu skv. 2. mgr. skal koma fram hvort atkvæðagreiðsla sé bindandi. Slíka ákvörðun má binda skilyrði um að tiltekið hlutfall þeirra sem voru á kjörskrá hafi tekið þátt í atkvæðagreiðslu.
Að öðru leyti skal fara eftir meginreglum laga um kosningar til sveitarstjórna eftir því sem við getur átt.
66. gr. Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.
Ef 30% af þeim sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr. sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.
Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk sveitarstjórna og framkvæmd almennrar atkvæðagreiðslu fer skv. 107. gr. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
67. gr. Gildistaka.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn og fundarsköp Bláskógabyggðar nr. 800/2019 með síðari breytingum.
Innviðaráðuneytinu, 22. febrúar 2022.
F. h. innviðaráðherra,
Guðni Geir Einarsson.
Hafdís Gísladóttir.
B deild - Útgáfud.: 8. mars 2022