Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi, Forseti Íslands, Dómsmál, Alþingi, Launamál, Stjórnarráð Íslands
Undirritunardagur
19. júní 2026
Útgáfudagur
26. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 60/2026
19. júní 2026
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna (viðmið uppfærslu launa).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
I. KAFLIBreyting á lögum um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands, nr. 10/1990.
1. gr.
Í stað 2.–5. málsl. 1. gr. laganna koma sjö nýir málsliðir, svohljóðandi: Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt þessari grein. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
2. gr.
Í stað 2.–5. málsl. 2. mgr. 5. gr. laganna koma sjö nýir málsliðir, svohljóðandi: Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt þessari grein. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
3. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Laun forseta Íslands og forsetaritara skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. og 2. mgr. 5. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki meiri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sömu ákvæðum 1. apríl og 1. október 2028.
II. KAFLIBreyting á lögum um þingfararkaup alþingismanna
og þingfararkostnað, nr. 88/1995.
4. gr.
Í stað 2.–5. málsl. 1. mgr. 15. gr. laganna koma sjö nýir málsliðir, svohljóðandi: Þingfararkaup skal taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt þessari grein. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða II í lögunum orðast svo:
Þingfararkaup skal hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 15. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun þingfararkaups ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
III. KAFLIBreyting á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
6. gr.
Í stað 2.–5. málsl. 2. mgr. 3. gr. laganna koma sjö nýir málsliðir, svohljóðandi: Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
7. gr.
Í stað 3.–6. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna koma sjö nýir málsliðir, svohljóðandi: Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
8. gr.
Ákvæði til bráðabirgða III í lögunum orðast svo:
Laun forsætisráðherra, annarra ráðherra og ráðuneytisstjóra skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 3. gr. og 3. mgr. 16. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sömu ákvæðum 1. apríl og 1. október 2028.
IV. KAFLIBreyting á lögum um dómstóla, nr. 50/2016.
9. gr.
4. mgr. 44. gr. laganna orðast svo:
Laun skv. 1.–3. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
10. gr.
Ákvæði til bráðabirgða X í lögunum orðast svo:
Laun forseta Hæstaréttar, varaforseta Hæstaréttar, annarra hæstaréttardómara, forseta Landsréttar, varaforseta Landsréttar, annarra landsréttardómara, dómstjórans í Reykjavík, varadómstjórans í Reykjavík, dómstjóra utan Reykjavíkur og annarra héraðsdómara skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 44. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
V. KAFLIBreyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
11. gr.
4. mgr. 20. gr. laganna orðast svo:
Laun skv. 3. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
12. gr.
4. mgr. 22. gr. laganna orðast svo:
Laun skv. 3. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
13. gr.
7. mgr. 24. gr. laganna orðast svo:
Laun skv. 6. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
14. gr.
Ákvæði til bráðabirgða XII í lögunum orðast svo:
Laun ríkissaksóknara, vararíkissaksóknara, annarra saksóknara hjá ríkissaksóknara, héraðssaksóknara, varahéraðssaksóknara, saksóknara sem stýrir sviði eða skrifstofu, annarra saksóknara hjá héraðssaksóknara og lögreglustjóra skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. og 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 22. gr. og 7. mgr. 24. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sömu ákvæðum 1. apríl og 1. október 2028.
VI. KAFLIBreyting á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019.
15. gr.
3. mgr. 5. gr. laganna orðast svo:
Laun skv. 1. og 2. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Seðlabankinn krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
16. gr.
Ákvæði til bráðabirgða VIII í lögunum orðast svo:
Laun seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 5. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
VII. KAFLIBreyting á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938.
17. gr.
Í stað 2.–5. málsl. 7. mgr. 20. gr. laganna koma sjö nýir málsliðir, svohljóðandi: Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
18. gr.
Ákvæði til bráðabirgða II í lögunum orðast svo:
Laun ríkissáttasemjara skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 7. mgr. 20. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
19. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Þó skulu ákvæði 1., 2., 4., 6., 7., 9., 11.–13., 15. og 17. gr. ekki koma til framkvæmda fyrr en 1. janúar 2028.
Ákvæði til bráðabirgða.
Við gildistöku laga þessara skal Hagstofa Íslands hefja undirbúning að útgáfu opinberrar launatölfræði í samræmi við ákvæði þeirra og birta frá og með 1. janúar 2028.
Fyrir lok árs 2031 skal ráðherra skipa starfshóp, m.a. með fulltrúum tilnefndum af aðilum vinnumarkaðarins, sem leggja skal mat á reynslu af aðferðafræði og fyrirkomulagi uppfærslu launa samkvæmt ákvæðum laga þessara. Starfshópurinn skal skila skýrslu til ráðherra um framkvæmdina og mögulegar umbætur.
Gjört í Reykjavík, 19. júní 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Daði Már Kristófersson.
A deild — Útgáfudagur: 26. júní 2026