Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Tóbak

Undirritunardagur

27. mars 2026

Útgáfudagur

8. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 334/2026

27. mars 2026

REGLUGERÐ

um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1250/2024 um útlit og viðvörunarmerkingar tóbaksvara, losun skaðlegra tóbaksefna, mæliaðferðir og skýrslugjöf.

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða í reglugerðinni orðast svo:

Tóbaksvörur sem merktar eru í samræmi við reglugerð um viðvörunarmerkingar á tóbaki og mælingar og hámark skaðlegra tóbaksefna, nr. 790/2011, má flytja til landsins næstu 24 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar og hafa í sölu í allt að 30 mánuði frá gildistöku reglugerðar þessarar.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 27. mars 2026.

Alma D. Möller.

Guðríður Bolladóttir.

B deild — Útgáfudagur: 8. apríl 2026

Tengd mál