Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

2. september 2024

Útgáfudagur

19. september 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1056/2024

2. september 2024

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2014.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.9 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1795 frá 24. júní 2024 um breytingu á ákvörðun 2011/235/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 1.9.
2.9 Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/1796 frá 24. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 359/2011 um þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Íran, fylgiskjal 2.9.
5.2 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1970 frá 15. júlí 2024 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, fylgiskjal 5.2.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 2. september 2024.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 19. september 2024

Tengd mál