Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
13. desember 2021
Útgáfudagur
27. desember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1531/2021
13. desember 2021
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Lokamálsliður 6. mgr. 2. tölul. 70. gr. reglnanna orðast svo: Verði ágreiningur fer um hann samkvæmt verklagsreglu sem háskólaráð setur.
2. gr.
2. málsl. 9. mgr. 98. gr. reglnanna orðast svo:
Stúdent í 240 eininga námi til BS-prófs í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf, þar sem 60 skilgreindar einingar eru metnar sem hluti námsins við inntöku í það, skal hafa lokið prófi eigi síðar en þremur árum eftir skráningu í námið.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 13. desember 2021.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021