Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umferðarmál, Ökutæki, Eftirlit
Undirritunardagur
16. maí 2023
Útgáfudagur
1. júní 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 528/2023
16. maí 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.
1. gr.
54. gr. reglugerðarinnar með fyrirsögninni „Áhættumatskerfi“ orðast svo:
Samgöngustofa skal koma upp áhættumatskerfi varðandi fyrirtæki. Skal reiknireglan sem kerfið byggir á vera til samræmis við það sem fram kemur í framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/695 frá 2. maí 2022 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/22/EB að því er varðar sameiginlega formúlu til að reikna út áhættumat flutningafyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2023, 17. mars 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 454-457.
2. gr.
Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, t-liður, sem verður svohljóðandi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/695 frá 2. maí 2022 um reglur um beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2006/22/EB að því er varðar sameiginlega formúlu til að reikna út áhættumat flutningafyrirtækja, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2023, 17. mars 2023, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 454-457.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. maí 2023.
F. h. r.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Gauti Daðason.
B deild - Útgáfud.: 1. júní 2023