Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Hörgársveit
Undirritunardagur
24. júní 2026
Útgáfudagur
8. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 779/2026
24. júní 2026
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, nr. 678/2013.
1. gr.
2. mgr. 8. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:
Sveitarstjórn heldur reglulega fundi í skrifstofu sveitarfélagsins annan og fjórða fimmtudag í mánuði, kl. 10.00, nema sveitarstjórn ákveði annað. Þó heldur sveitarstjórn ekki reglulegan fund í júlímánuði.
2. gr.
Við 19. gr. samþykktarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Sveitarstjórnarfulltrúar skulu í störfum sínum gæta ákvæða laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.
3. gr.
40. gr. samþykktarinnar breytist og orðast svo:
A. Fulltrúar kjörnir til 4 ára í fastanefndir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:
- Yfirkjörstjórn við forseta-, sveitarstjórnar- og alþingiskosningar auk annarra kosninga svo sem þjóðaratkvæðagreiðslur. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 17. gr. kosningalaga, nr. 112/2021.
- Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varða skipulagsmál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 6. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010.
- Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varða fræðslumál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 4. gr. laga um leikskóla, nr. 90/2008, og skv. 6. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008.
- Velferðar-, menningar- og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varða velferðar-, jafnréttis- og húsnæðismál. Þá fer nefndin með málefni sveitarfélagsins er varða menningu og tómstundir í samræmi við erindisbréf nefndarinnar. Nefndin fer jafnframt með hlutverk félagsmálanefndar samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018. Þá starfar nefndin í samræmi við 13. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020. Nefndin fer jafnframt með stjórn og samræmingu húsnæðismála sveitarfélagsins, sbr. 6. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998.
- Fjallskilanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. 2. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl., nr. 6/1986. Fjallskilanefnd hefur heimild til fullnaðarákvarðana um skipulag fjallskila í sveitarfélaginu, þ.m.t. að jafna niður gangnadagsverkum, sbr. 29. gr. þessarar samþykktar.
- Landbúnaðar-, atvinnu- og nýsköpunarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varða landbúnað, atvinnu og nýsköpun í samræmi við erindisbréf nefndarinnar.
- Samgöngu-, umhverfis- og náttúruverndarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varða samgöngu-, umhverfis- og náttúruverndarmál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.
- Öldungaráð. Skipað sjö fulltrúum og jafnmörgum til vara í samræmi við 7. gr. laga nr. 125/1999. Ráðið skal vera sveitarstjórn til ráðuneytis um málefni eldri borgara sveitarfélagsins í samræmi við erindisbréf ráðsins.
- Ungmennaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið skal vera sveitarstjórn til ráðuneytis um málefni sem tengjast ungu fólki í samræmi við erindisbréf ráðsins og 11. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007.
B. Aðrar stjórnir, fulltrúar og samstarfsnefndir á vegum sveitarfélagsins þar sem sveitarstjórn skipar fulltrúa eða fulltrúar skipaðir af viðkomandi nefndum/ráðum:
- Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 4. gr. laga sambandsins.
- Þing SSNE. Þrír aðalmenn og þrír varamenn samkvæmt samþykktum fyrir SSNE.
- Stjórn SSNE. Einn aðalmaður og einn varamaður samkvæmt samþykktum SSNE.
- Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. lögum um hafnamál, nr. 61/2003, og gr. 3.0 í stofnsamningi byggðasamlagsins.
- Skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, sbr. og reglugerð um skólann.
- Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar. Kjósa skal einn fulltrúa í nefndina og einn til vara. Kjörtímabil nefndarinnar er fjögur ár og er hið sama og sveitarstjórna.
- Framkvæmdaráð vegna þjónustu við fatlað fólk. Einn aðalmaður og einn varamaður í framkvæmdaráð sameiginlegs þjónustusvæðis um þjónustu við fatlað fólk, sbr. samning fimm sveitarfélaga við Eyjafjörð þar að lútandi.
- Stjórn Minjasafnsins á Akureyri. Einn aðalmaður/varamaður, sbr. 5. gr. stofnskrár safnsins.
- Stjórn Skipulags- og byggingarfulltrúaembættis Eyjafjarðar bs. Einn aðalmaður og einn varamaður, sbr. 4. gr. samþykktar um Skipulags- og byggingarfulltrúaembætti Eyjafjarðar bs.
- Almannavarnanefnd í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Einn aðalmaður og einn varamaður.
- Stjórn Flokkunar Eyjafjarðar ehf. Einn aðalmaður og einn varamaður.
- Fulltrúaráð EBÍ. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykktum fyrir Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.
C. Auk þess tekur sveitarstjórn þátt í kosningu í eftirtaldar nefndir, stjórnir og ráð á sameiginlegum vettvangi sveitarstjórna í Eyjafirði, eftir því sem við á hverju sinni:
- Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra.
- Skólanefnd Menntaskólans á Akureyri.
- Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
- Skólanefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
- Gróðurverndarnefnd.
- Byggingarnefnd Menntaskólans á Akureyri.
- Byggingarnefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
- Byggingarnefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
- Stjórn Moltu ehf.
- Málefni fatlaðs fólks. Áheyrnarfulltrúi á fundum velferðarráðs Akureyrarbæjar þegar til umræðu eru málefni samstarfsverkefnisins.
- Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs landsbyggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmisráðs er fimm ár.
- Barnaverndarþjónusta Norðurlands eystra. Samkvæmt samningi um rekstur barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra, sbr. auglýsingu nr. 380/2026, fer Akureyrarbær með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, sem ekki eru falin öðrum.
D. Verkefnabundnar nefndir:
Sveitarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.
4. gr.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Hörgársveitar hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, staðfestist hér með til þess að öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 24. júní 2026.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Ólöf Sunna Jónsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026