Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Fóður
Undirritunardagur
29. nóvember 2016
Útgáfudagur
30. nóvember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1046/2016
29. nóvember 2016
REGLUGERÐ
um (30.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2016, frá 5. febrúar 2016, öðlast eftirtaldar ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1955 frá 29. október 2015 um breytingu á I. og II. viðauka við tilskipun ráðsins 66/402/EBE um markaðssetningu sáðkorns. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 31. mars 2016, bls. 163.
2. gr.
9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum, er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr., 9. gr. a – 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Hún er sett til innleiðingar á framkvæmdartilskipun (ESB) 2015/1955, sbr. 1. gr., og framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2015/1168 frá 15. júlí 2015 um breytingu á tilskipunum 2003/90/EB og 2003/91/EB um framkvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/53/EB og 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/55/EB, í þeirri röð, að því er varðar þá eiginleika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytjaplantna og grænmetistegunda í landbúnaði, sem tekin var inn í III. kafla I. viðauka við EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2016, frá 5. febrúar 2016. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Eggert Ólafsson.
VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2016