Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Fjármálastarfsemi, Gjaldeyrismál

Undirritunardagur

28. apríl 2011

Útgáfudagur

28. apríl 2011

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 416/2011

28. apríl 2011

AUGLÝSING

um endurskoðun reglna nr. 370/2010, um gjaldeyrismál.

Í samræmi við bráðabirgðaákvæði I laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992, með síðari breytingum, og ákvæði 17. gr. reglna nr. 370/2010, um gjaldeyrismál, hefur Seðlabanki Íslands lokið endurskoðun á gildandi reglum nr. 370/2010, um gjaldeyrismál, og telur Seðlabankinn ekki þörf á að gera breytingar á þeim. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur veitt samþykki sitt fyrir óbreyttum reglum, með bréfi, dags. 27. apríl 2011.

Reglur nr. 370/2010, um gjaldeyrismál, haldast því óbreyttar. Reglurnar skulu endurskoðaðar innan sex mánaða frá birtingu auglýsingar þessarar.

Arnór Sighvatsson
aðstoðarseðlabankastjóri.
Þuríður Árnadóttir,
staðg. forstm. gjaldeyriseftirlits.

Reykjavík, 28. apríl 2011.

Seðlabanki Íslands,

B deild - Útgáfud.: 28. apríl 2011

Tengd mál