Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
3. júní 2016
Útgáfudagur
20. júní 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 544/2016
3. júní 2016
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
1. málsliður 8. mgr. 5. gr. reglnanna orðast svo: Í umboði rektors hefur framkvæmdastjóri stjórnsýslu yfirumsjón og eftirlit með sameiginlegri stjórnsýslu háskólans.
2. gr.
3. og 4. málsliður 1. mgr. 8. gr. reglnanna orðast svo: Framkvæmdastjóri stjórnsýslu leiðir sameiginlega stjórnsýslu skólans í umboði rektors. Hefur hann yfirumsjón með sviðum hinnar sameiginlegu stjórnsýslu skólans sem eru: framkvæmda- og tæknisvið, fjármálasvið, kennslusvið, markaðs- og samskiptasvið, starfsmannasvið og vísinda- og nýsköpunarsvið.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 3. júní 2016.
Jón Atli Benediktsson.
Halldór Jónsson.
B deild - Útgáfud.: 20. júní 2016