Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Vogar
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Gullbringusýsla
Undirritunardagur
29. apríl 2022
Útgáfudagur
19. maí 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 576/2022
29. apríl 2022
GJALDSKRÁ
fyrir fráveitu í Sveitarfélaginu Vogum.
1. gr.
Af öllum fasteignum í Sveitarfélaginu Vogum sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem fráveitulagnir liggja, skal greiða árlegt fráveitugjald til sveitarfélagsins:
Fráveitugjald,
íbúðir,
0,11%
af
fasteignamati.
Fráveitugjald,
atvinnuhúsnæði,
0,11%
af
fasteignamati.
2. gr.
Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatta og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
3. gr.
Þinglýstur eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds og er gjaldið tryggt með lögveði í fasteigninni.
4. gr.
Stofngjald fráveitu skal vera ákveðið hlutfall byggingarkostnaðar pr. fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlishúss eins og hann er hverju sinni samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands á grundvelli laga nr. 42/1987 um vísitölu byggingarkostnaðar með síðari breytingum.
| Einbýlishús | 100% | |
| Rað-, par-, tvíbýlis- og keðjuhús | 85% | |
| Fjölbýlishús | 50% | |
| Atvinnuhúsnæði | 125% |
5. gr.
Gjaldskrá þessi, staðfestist hér með samkvæmt 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna með síðari breytingum. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir fráveitu í Sveitarfélaginu Vogum nr. 345/2017.
Samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga 15. desember 2021.
F.h. Sveitarfélagsins Voga, 29. apríl 2022,
Daníel Arason forstöðumaður stjórnsýslu.
B deild - Útgáfud.: 19. maí 2022