Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Ökutæki
Undirritunardagur
30. september 2019
Útgáfudagur
18. október 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 909/2019
30. september 2019
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 822/2004 um gerð og búnað ökutækja.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á lið 07.01 um ljósker í 7. gr.:
-
Skilgreining
á
„Auka
háljósker“
í
tölulið
(1)
um
aðalljós
skal
vera
eftirfarandi:
Auka háljósker: Ljósker skulu tengd öðrum háljóskerum og kvikna skal á þeim samtímis áskildum háljóskerum eða um sérstakan rofa. Þegar um er að ræða tvö pör aukaháljóskera mega þau ekki loga samtímis. Einnig er heimilt að hafa aðeins eitt aukaháljósker í stað pars aukaháljóskera, og skal það þá vera í lóðréttu breiddarmiðplani ökutækisins. Þegar skipt er af háljósum á lágljós skulu öll háljósin slokkna samtímis. Aukaháljós skulu staðsett framar en ökumaður. Að öðru leyti gilda sömu ákvæði og um áskilin háljósker. -
Í
stað
orðanna
„Ljóskerin
skulu
vera
byrgð
þegar
þau
eru
ekki
í
notkun“
í
tölulið
(11)
um
ljóskastara
kemur:
Fjöldi: Einn eða tveir. Ef einn ljóskastari er notaður skal hann vera í lóðréttu breiddarmiðplani ökutækisins. -
Skilgreining
á
„Tíðni“
í
tölulið
(12)
um
neyðarakstursljós
í
lið
07.01
um
ljósker
í
7.
gr.
skal
vera
eftirfarandi:
Tíðni: Blikktíðni skal vera á milli 60 og 240 leiftur á mínútu. Þó er heimilt að hafa eingöngu blá ljós án blikktíðni (sólir) til að auka sýnileika neyðarakstursökutækis þegar neyðarakstur á sér ekki stað t.d. að næturlagi og við fjölmennar samkomur.
2. gr.
Við lið 07.02 um glitaugu og endurskinsmerki í 7. gr. bætast eftirfarandi töluliðir:
-
(8)
Sérstakar
glitmerkingar.
Glitmerkingar ökutækja í neyðarakstri skulu vera sem hér segir:
Litasamsetningar:
Ökutæki lögreglu: Gulur og blár.
Ökutæki slökkviliðs: Gulur og rauður.
Ökutæki til sjúkraflutninga: Gulur og grænn.
Ökutæki björgunarsveita: Gulur og appelsínugulur.
Óheimilt er að hafa framvísandi rauða glitmerkingu og afturvísandi hvíta glitmerkingu, nema um sé að ræða viðvörunarglitmerkingar.
Lögun: Raðir af viðeigandi litum til skiptis. Önnur ökutæki en fólksbifreiðar skulu hafa ferhyrnt glit á hlið, viðvörunarglitmerkingar skv. lið 07.02 (7) að framan og/eða aftan.
Viðurkenning og merkingar: Ekki er gerð krafa um viðurkenningu á sérstökum glitmerkingum, en viðvörunarglitmerkingar skulu vera viðurkenndar og merktar samkvæmt ECE-reglum nr. 70 og 104.
Stærð merkinga: Hver flötur skal vera að lágmarki 40 x 40 mm. -
(9)
Undanþága.
Samgöngustofa getur veitt ökutækjum í neyðaraksti undanþágu frá merkingum eða heimild til frekari merkinga og annarrar gerðar þeirra en kveðið er á um í reglugerð þessari.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 60. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. september 2019.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 18. október 2019