Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skrifstofa forseta Íslands

Málaflokkur

Heiðursmerki

Undirritunardagur

31. desember 2009

Útgáfudagur

16. febrúar 2010

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1124/2009

31. desember 2009

HEIÐURSMERKI FÁLKAORÐUNNAR

Eftirtaldir menn voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á árinu 2008:

I. Íslenskir ríkisborgarar.

1. janúar 2008:

Bjarni Ásgeir Friðriksson, íþróttamaður og ólympíuverðlaunahafi, Reykjavík, riddarakross fyrir íþróttaafrek og framlag til íþróttafræðslu.

Björgvin Magnússon, fyrrv. skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu skáta­hreyfingar og æskulýðs.

Bolli Þór Bollason ráðuneytisstjóri, Garðabæ, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu.

Erlingur Gíslason leikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og menningar.

Inga Lára Baldvinsdóttir sagnfræðingur, Eyrarbakka, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar ljósmyndasögu og varðveislu menningararfleifðar.

Ingibjörg Þorbergs tónskáld, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar.

Margrét Eybjörg Margeirsdóttir félagsráðgjafi, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að félags- og velferðarmálum.

Ólafur Elíasson myndlistarmaður, Hellerup, Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar myndlistar.

Sigríður Pétursdóttir bóndi, Ólafsvöllum á Skeiðum, riddarakross fyrir störf að ræktun íslenska fjárhundsins.

Sigrún Eldjárn, rithöfundur og myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar barnamenningar.

Þórir Stephensen, fyrrv. dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, Reykjavík, riddara­kross fyrir störf í þágu kirkju, sögu og samfélags.

17. júní 2008:

Árný Erla Sveinbjörnsdóttir rannsóknarprófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu jarðvísinda og rannsóknir á sögu veðurfars.

Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Kópavogi, stórriddarakross fyrir störf í opinbera þágu.

Haraldur Helgason verslunarmaður, Akureyri, riddarakross fyrir störf að verslun.

Helgi Björnsson rannsóknarprófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra og alþjóðlegra jöklarannsókna og vísindasamstarfs.

Kjartan Sveinsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir nýsköpun í tónlist.

Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari, Garðabæ, riddarakross fyrir framlag til almennings­íþrótta.

Ólafur Gaukur Þórhallsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi tónlistar og tónsmíða.

Sigríður Ragnarsdóttir skólastjóri, Ísafirði, riddarakross fyrir störf að tónlistarmenntun.

Svafa Grönfeldt rektor, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs og háskóla­menntunar.

Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu minja­verndar og að varðveislu íslenskrar húsagerðar.

Þuríður Rúrí Fannberg myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar myndlistar.

27. ágúst 2008:

Alexander Petersson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Arnór Atlason handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Ásgeir Örn Hallgrímsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Björgvin Páll Gústavsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Einar Þorvarðarson framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, riddarakross fyrir forystu í íslenskum handbolta.

Guðjón Valur Sigurðsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari, stórriddarakross fyrir framlag til afreksíþrótta.

Guðmundur Ágúst Ingvarsson formaður Handknattleikssambands Íslands, stórriddara­kross fyrir forystu í íslenskum handbolta.

Hreiðar Levy Guðmundsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Ingimundur Ingimundarson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Logi Geirsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Ólafur Stefánsson handknattleiksmaður, stórriddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Róbert Gunnarsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Sigfús Sigurðsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Snorri Steinn Guðjónsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Sturla Ásgeirsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

Sverre Andreas Jakobsson handknattleiksmaður, riddarakross fyrir afrek í íþróttum.

II. Erlendir ríkisborgarar.

20. maí 2008:

John Hungerford læknir, Bretlandi, riddarakross, fyrir þjónustu við íslenska sjúklinga.

B deild - Útgáfud.: 16. febrúar 2010

Tengd mál