Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip

Undirritunardagur

30. apríl 2021

Útgáfudagur

19. maí 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 563/2021

30. apríl 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 142/2004 um viðurkenningu flokkunarfélaga og um reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun.

1. gr.

Hvar sem orðin „Siglingastofnun“ eða „Siglingastofnun Íslands“ koma fyrir í reglugerðinni, í hvers konar beygingarfalli kemur í viðeigandi beygingarfalli: Samgöngustofa.

2. gr.

Í stað orðasambandsins „framkvæmdastjórn ESB“ í 7., 9. og 10. gr. reglugerðarinnar kemur: Eftirlitsstofnun EFTA.

Orðasambandið „Framkvæmdastjórn ESB“ í 8. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

Í stað orðsins „framkvæmdastjórninni“ í 4. lið B-liðar viðauka við reglugerðina kemur: Eftirlitsstofnun EFTA.

3. gr.

Við b-lið 2. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi:

Skip sem falla ekki undir þessa skilgreiningu teljast annaðhvort sigla undir fána aðildarríkis EES-samningsins eða þriðja ríkis.

4. gr.

Við 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður svohljóðandi:

Skal hún starfa eftir viðeigandi ákvæðum viðauka við reglugerð þessa og viðauka við ályktun Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar A.847(20).

5. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Stofnun skal senda beiðni um viðurkenningu til Samgöngustofu sem sendir Eftirlitsstofnun EFTA beiðni um viðurkenningu stofnunar í samræmi við tilskipun ráðsins nr. 94/57/EB um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun fyrir tilheyrandi starfsemi siglingayfirvalda, með síðari breytingum.

6. gr.

Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Samvinnu á grundvelli þessarar greinar skal tilkynna til Eftirlitsstofnunar EFTA. Tilkynningu skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um samvinnu hinnar viðurkenndu stofnunar og Samgöngustofu.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 10. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. apríl 2021.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. maí 2021

Tengd mál