Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

29. september 2016

Útgáfudagur

13. október 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 851/2016

29. september 2016

AUGLÝSING

um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Engjateigur 7.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 16. september 2016 breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits vegna lóðarinnar nr. 7 við Engjateig. Í breytingunni felst að mörk þess svæðis sem deiliskipulagsbreytingin tekur til stækkar til suðurs, afmörkuð er ný bílastæðalóð sunnan Engjateigs á móts við lóð nr. 7 og að koma fyrir 11 bílastæðum á bílastæðalóð við götu þar af eru tvö stæði fyrir hreyfihamlaða. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipholt 29 og 29a.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 16. september 2016 breytingu á deiliskipulagi reits 1.250.1, Skipholtsreits, vegna húsanna nr. 29 og 29A við Skipholt á lóð nr. 29 við Skipholt. Í breytingunni felst hækkun á hámarkshæð um 80 sm, hækkun nýtingarhlutfalls úr 2,0 í 2,16, byggingarreitur húss nr. 29 dýpkaður til norðurs og gerður nýr byggingarreitur fyrir lyftu- og stigahús. Húsin mega vera 4 hæðir, efsta hæð formuð sem þakhæð, leyft að setja lóðrétta kvista á 2/3 hluta þakflatar og að setja svalir og svalahurðar á suðurhlið og inngangshurðir á norðurhlið. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar, 29. september 2016.

Björn Axelsson.

B deild - Útgáfud.: 13. október 2016

Tengd mál