Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

4. janúar 2021

Útgáfudagur

21. janúar 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 29/2021

4. janúar 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús nr. 97/2012, ásamt síðari breytingum, í réttri númeraröð:

1.15 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/2130 frá 17. desember 2020 um framkvæmd ákvörðunar 2012/642/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 1.15.
2.21 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/2129 frá 17. desember 2020 um framkvæmd 1. mgr. 8. gr. reglugerðar (ESB) nr. 765/2006 um þvingunaraðgerðir gegn Belarús, sbr. fylgiskjal 2.21.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 4. janúar 2021.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 21. janúar 2021

Tengd mál