Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
8. maí 2018
Útgáfudagur
24. maí 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 515/2018
8. maí 2018
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað tölunnar „10" í lok 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglnanna kemur: 12.
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi og verður beitt frá og með háskólaárinu 2018-2019.
Háskóla Íslands, 8. maí 2018.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 24. maí 2018