Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Ökutæki
Undirritunardagur
16. maí 2023
Útgáfudagur
1. júní 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 531/2023
16. maí 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja.
1. gr.
Við 2. mgr. 50. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, c-liður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/621 frá 17. apríl 2019 um þær tæknilegu upplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir prófun á aksturshæfni varðandi þau atriði sem á að prófa, um notkun á þeim prófunaraðferðum sem mælt er með og um að koma á ítarlegum reglum um gagnasnið og málsmeðferðarreglur um aðgang að viðkomandi tæknilegum upplýsingum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2023, 17. mars 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30 frá 20. apríl 2023, bls. 430-453.
2. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 16. maí 2023.
F. h. r.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Gauti Daðason.
B deild - Útgáfud.: 1. júní 2023