Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Ríkisstjórn, Stjórnarráð Íslands
Undirritunardagur
17. október 2024
Útgáfudagur
17. október 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 121/2024
17. október 2024
FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 32/2024, um skiptingu starfa ráðherra.
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftirfarandi breyting á forsetaúrskurði nr. 32/2024, um skiptingu starfa ráðherra:
1. gr.
3. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:
Félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið félags- og vinnumarkaðsráðherra.
2. gr.
7. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:
Innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir innviðaráðuneytið skv. 7. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið innviðaráðherra.
3. gr.
8. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:
Matvælaráðherra.
Bjarni Benediktsson fer með stjórnarmálefni sem heyra undir matvælaráðuneytið skv. 8. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands og ber embættisheitið matvælaráðherra.
4. gr.
Forsetaúrskurður þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 17. október 2024.
Halla
Tómasdóttir.
(L.
S.)
Bjarni Benediktsson.
A deild - Útgáfud.: 17. október 2024