Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjavík
Undirritunardagur
9. janúar 2026
Útgáfudagur
23. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 36/2026
9. janúar 2026
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.
Rafstöðvarsvæði – Rafstöðvarvegur 5-9 – USK25060155.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 11. nóvember 2025, breytingu á deiliskipulagi Rafstöðvarsvæðis vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Rafstöðvarveg vegna byggingar nýs 7 deilda leikskóla. Í breytingunni felst annars vegar stækkun og tilfærsla á byggingarreit B1 ásamt breytingu á kvöðum þeirrar lóðar, skilmálum og auknu byggingarmagni, og hins vegar er stofnuð ný lóð við Rafstöðvarveg 5 þar sem verður leiksvæði leikskólans. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Kjalarnes, Skrauthólar – Skrauthólar 1 og 5 – USK25070331.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 22. desember 2025, breytingu á skilmálum deiliskipulags jarðarinnar Skrauthóla á Kjalarnesi. Í breytingunni felst að skilmálar í tengslum við 150 m² íbúðarhús á einni hæð í landi Skrauthóla 5 eru felldir út. Engin breyting er gerð á stærð eða afmörkun byggingarreits. Þá er bætt við skilmálum í greinargerð um samræmi nýbygginga við ákvæði í ofanflóðahættumati Veðurstofu Íslands fyrir Kjalarnes á svæðinu fyrir neðan Esjuhlíðar frá 2014. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 9. janúar 2026.
Brynjar Þór Jónasson.
B deild — Útgáfudagur: 23. janúar 2026