Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Sjóðir og stofnanir, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
30. maí 2023
Útgáfudagur
14. júní 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 586/2023
30. maí 2023
REGLUR
um skilgreiningar og viðmið vegna evrópskra langtímafjárfestingarsjóða.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um evrópska langtímafjárfestingarsjóði og rekstraraðila þeirra sem hafa staðfestu eða eru markaðssettir hér á landi samkvæmt lögum nr. 115/2022 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði. Reglurnar mæla fyrir um nánari framkvæmd reglugerðar (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði.
2. gr. Afleiður til áhættuvarna.
Um viðmið um þær aðstæður þar sem fjármálaafleiður þjóna eingöngu þeim tilgangi að vera vörn gegn áhættu sem er innbyggð í fjárfestingar sjóðs, sbr. 9. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760, fer eftir framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2018/480, sbr. 6. gr.
3. gr. Nægilegur líftími evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs.
Um það við hvaða aðstæður líftími evrópsks langtímafjárfestingarsjóðs telst nægjanlega langur til að ná yfir lífsferil hverrar einstakrar eignar sjóðsins, sbr. 18. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760, fer eftir framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2018/480, sbr. 6. gr.
4. gr.
Viðmiðanir
fyrir
mat
á
markaði
fyrir
hugsanlega
kaupendur
og
viðmiðanir
fyrir
mat
á
virði
eigna
sem
á
að
losna
við.
Um þær viðmiðanir sem nota skal við mat á markaði fyrir mögulega kaupendur og verðmat á þeim eignum sem á að losa um, sbr. 21. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760, fer eftir framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2018/480, sbr. 6. gr.
5. gr. Skilgreining á aðstöðu sem standa skal almennum fjárfestum til boða.
Um tegundir og einkenni á aðstöðu fyrir almenna fjárfesta, sbr. 26. gr. reglugerðar (ESB) 2015/760, fer eftir framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2018/480, sbr. 6. gr.
6. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/480 frá 4. desember 2017, um tæknilega eftirlitsstaðla að því er varðar fjármálaafleiðugerninga sem hafa þann eina tilgang að verja gegn áhættu, nægilegan líftíma evrópsku langtímafjárfestingarsjóðanna, viðmiðanir fyrir mat á markaðnum fyrir hugsanlega kaupendur og virði eignanna sem á að losna við og tegundir og einkenni aðstöðunnar sem stendur almennum fjárfestum til boða. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 25-29.
7. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 15. gr. laga nr. 115/2022 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 30. maí 2023.
|
Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóri. |
Gísli
Óttarsson framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 14. júní 2023