Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
11. desember 2019
Útgáfudagur
18. desember 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1162/2019
11. desember 2019
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.
1. gr.
3. gr. reglnanna, um takmörkun á inntöku nemenda í lagadeild, fellur brott. Jafnframt breytast númer næstu tveggja greina þannig að núverandi 3. gr. a verður 3. gr. og núverandi 3. gr. b verður 3. gr. a.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:
-
4.
mgr.
breytist
og
orðast
svo:
Fjöldi nemenda á vormisseri 1. námsárs í 240 eininga námi til BS-prófs í hjúkrunarfræði takmarkast við töluna 130. - Í stað tölunnar „120“ í 2. málsl. 5. mgr. og 1. málsl. 6. mgr. kemur: 130.
-
Á
eftir
6.
mgr.
bætast
við
þrjár
nýjar
málsgreinar,
svohljóðandi:
Fjöldi nýrra nemenda í hjúkrunarfræði fyrir fólk sem lokið hefur öðru háskólaprófi takmarkast við töluna 20. Starfræksla námsins á hverju námsári er háð því að 15 umsækjendur að lágmarki uppfylli skilyrði til þess að hefja nám.
Ef fleiri en 20 umsækjendur uppfylla inntökuskilyrðin mun val nemenda taka mið af: - Námsárangri í fyrra námi.
- Samsetningu fyrra náms, öðru námi og/eða starfsreynslu.
- Frammistöðu í viðtali, fari það fram.
3. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum félagsvísindasviðs og heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi og verður beitt frá og með háskólaárinu 2020–2021.
Háskóla Íslands, 11. desember 2019.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 18. desember 2019