Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármálaráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

30. nóvember 2006

Útgáfudagur

15. desember 2006

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1025/2006

30. nóvember 2006

AUGLÝSING

um ákvörðun skattumdæma vegna sameininga sveitarfélaga, sbr. 84. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum.

1. gr.

Með auglýsingu þessari er kveðið á um mörk skattumdæma vegna sameininga sveitarfélaga á árinu 2006 í þeim tilvikum þegar sameining hefur verið þvert á skattumdæmi.

2. gr.

Á árinu 2006 sameinuðust Siglufjarðarkaupstaður og Ólafsfjarðarkaupstaður í nýtt sveitarfélag, Fjallabyggð.

Fjármálaráðherra hefur ákveðið að sveitarfélagið Fjallabyggð skuli falla undir Norðurlandsumdæmi vestra, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 84. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

3. gr.

Á árinu 2006 sameinuðust Þórshafnarhreppur og Skeggjastaðahreppur í nýtt sveitarfélag, Langanesbyggð.

Fjármálaráðherra hefur ákveðið að sveitarfélagið Langanesbyggð skuli falla undir Norðurlandsumdæmi eystra, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 84. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

4. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 2. málsl. 2. mgr. 84. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, kemur til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda 2007 vegna tekna ársins 2006 og ákvörðun staðgreiðslu og virðisaukaskatts vegna launa og veltu frá og með 1. janúar 2007.

Fjármálaráðuneytinu, 30. nóvember 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Ingvi Már Pálsson.

B deild - Útgáfud.: 15. desember 2006

Tengd mál