Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

28. febrúar 2022

Útgáfudagur

28. febrúar 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 248/2022

28. febrúar 2022

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

3.40 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/241 frá 21. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.40.
3.41 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/265 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.41.
3.42 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/267 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.42.
4.44 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/236 frá 21. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.44.
4.45 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/259 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.45.
4.46 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/260 frá 23. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.46.
4.47 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/261 frá 23. febrúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.47.
7.12 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/52 frá 13. janúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.12.
7.13 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/264 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.13.
8.5 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/262 frá 23. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.5.
9 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/266 frá 23. febrúar 2022 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við viðurkenningu á héruðunum Donetsk og Luhansk í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar og skipunum um að senda rússneskan herafla inn í þessi héruð.
10 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/263 frá 23. febrúar 2022 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við viðurkenningu á héruðunum Donetsk og Luhansk í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar og skipunum um að senda rússneskan herafla inn í þessi héruð.

2. gr. Yfirflugsbann.

Öllum loftförum í eigu, leigu, sem rekin eru af eða á annan hátt starfrækt eða stjórnað af rússneskum ríkisborgurum og aðilum með flugrekstrarskírteini gefin út af rússneskum yfirvöldum er bannað að fara í, úr eða í gegnum íslenska lofthelgi. Þar á meðal sem markaðsflugrekandi með sameiginleg flugnúmer, í föstum sætakaupum og/eða rými í loftfari.

Utanríkisráðuneytið getur veitt undanþágu frá 1. mgr.

Ákvæði 1. mgr. gildir ekki ef um er að ræða nauðlendingu eða yfirflug á grundvelli neyðarástands.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 28. febrúar 2022.

Bjarni Benediktsson.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 28. febrúar 2022

Tengd mál