Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
5. janúar 2017
Útgáfudagur
26. janúar 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 58/2017
5. janúar 2017
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu nr. 281/2014:
| 3.17 | Ákvörðun ráðsins 2016/1961/SSUÖ frá 8. nóvember 2016 um breyting á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.17. | |
| 4.20 | Framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1955 frá 8. nóvember 2016 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.20. |
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 5. janúar 2017.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Stefán Haukur Jóhannesson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2017