Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seyðisfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Sorphreinsun, Seyðisfjörður
Undirritunardagur
1. maí 2020
Útgáfudagur
5. maí 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 414/2020
1. maí 2020
GJALDSKRÁ
fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Seyðisfjarðarkaupstað.
1. gr.
Árlegt þjónustugjald vegna sorphirðu og sorpeyðingar á Seyðisfirði, til að standa undir kostnaði, er sem hér segir:
-
Fyrir hverja íbúð í þéttbýli og á lögbýli eða íbúðarhús utan þéttbýlis greiðist þjónustugjald:
Sorphirðugjald 19.834 kr. Sorpförgunargjald 8.699 kr. Samtals: 28.532 kr.
-
Tíðni losunar og rúmmál íláta:
Þéttbýli:Brún tunna 120 l Hálfsmánaðarlega á sumrin, annars mánaðarlega Grá tunna 240 l Mánaðarlega Græn tunna 240 l Mánaðarlega Dreifbýli:
Jarðgerðartunna Ekki losuð Grá tunna 240 l Mánaðarlega Grænt kar 660 l Á tveggja mánaða fresti. Sjá nánar á sorphirðudagatölum.
- Fyrir hvert frístundahús (sumarbústaðir o.þ.h.), greiðist þjónustugjald 30% af fullu gjaldi (kr. 25.880) enda geti notendur þeirra losað sig við sorp á gámasvæði á vegum sveitarfélagsins eða í reglubundna sorpsöfnunarferð sorpbíls á vegum sveitarfélagsins, þar sem aðstæður leyfa og þá samkvæmt sérstöku samkomulagi. Íbúar með lögheimili í sveitarfélaginu greiða hvorki sorphirðu- né sorpförgunargjald af frístundahúsum sínum innan sveitarfélagsins sem þeir nýta sjálfir ef þeir greiða fullt sorpgjald af öðru íbúðarhúsnæði sem þeir búa í, í sveitarfélaginu.
- Fyrir hvert frístundahús (sumarbústaðir o.þ.h.) sem nýtur fullrar sorpþjónustu frá fyrstu skipulögðu losun eftir 10. maí til síðustu skipulögðu losunar fyrir 27. september greiðist þjónustugjald sem nemur 50% af fullu gjaldi.
- Á Bjólfsbakka er móttökustöð og gámasvæði.
-
Óski greiðendur eftir fleiri sorpílátum skal greiða fyrir:
Grá tunna 240 l 6.560 kr. Græn tunna 240 l 3.197 kr. Brún tunna 120 l 3.197 kr.
2. gr.
Gjald fyrir sorphirðu samkvæmt 1. gr. skal innheimta með fasteignagjöldum.
3. gr.
Gjald fyrir úrgang sem komið er með til söfnunarstöðvar:
| Meðhöndlun | kr./klst. án vsk. |
| Tímavinna við flokkun og frágang | 3.407 kr. |
| Vigtunargjald | 1.538 kr. |
| Vigtunargjald utan opnunartíma | 8.487 kr. |
| Óflokkað | |
| Grófur óflokkaður úrgangur | 37 kr. |
| Úrgangur sem þarf að flokka og vinna sérstaklega fyrir förgun og aðra meðhöndlun. Sem dæmi: teppi, dýnur, kaðlar, net og húsgögn. | |
| Blandaður úrgangur | 30 kr. |
| Að mestu úrgangur sem fer ekki í skilgreindan endurvinnsluferil og þarfnast ekki sérstakrar meðhöndlunar fyrir förgun. | |
| Flokkað | |
| Seyra/úrgangur úr fituskiljum | 5 kr. |
| Endurvinnanlegt timbur | 10 kr. |
| Hreint, ekki litað eða fúavarið | |
| Óendurvinnanlegt timbur | 32 kr. |
| Litað, plasthúðað, spónaplötur o.þ.h. | |
| Lífrænn úrgangur til jarðgerðar | 22 kr. |
| Tekið er við lífrænum úrgangi á söfnunarstöð á þriðjudögum | |
| Kjöt og sláturúrgangur | 22 kr. |
| Heimilistæki o.fl. | |
| Bylgjupappi, dagblöð, tímarit, skrifstofupappír og annar pappír ótækur til endurvinnslu | 32 kr. |
| Plast til endurvinnslu | |
| Bylgjupappi sem er tækur til endurvinnslu | |
| Dagblöð, tímarit, skrifstofupappír og annar pappír tækur til endurvinnslu | |
| Garðaúrgangur án aðskotahluta | |
| Spilliefni og spilliefnamengaður úrgangur o.þ.h. sem úrvinnslugjald er ekki lagt á: | |
| Olíuúrgangur s.s. ódælanlegur úrgangur og olíumengaður jarðvegur, tvistur o.fl. | 31 kr. |
| Ýmis spilliefni, s.s.málning, lyf, sprautunálar, flugeldar, úðabrúsar. | 96 kr. |
| Umbúðir spilliefnamerktar eða -mengaðar > 100 l | 7.461 kr.stk. |
| Umbúðir spilliefnamerktar eða -mengaðar < 100 l | 1.882 kr./stk. |
| Móttökugjald fyrir einstaka farma m³ | kr./kg án vsk. |
| <=0,25(1/4) | 1.082 kr. |
| <=0,50(1/2) | 2.160 kr. |
| <=0,75(3/4) | 3.229 kr. |
| <=1,00 | 4.322 kr. |
4. gr.
Tekið er á móti úrgangi sem úrvinnslugjald er lagt á, án endurgjalds. Starfsmaður söfnunarstöðvar ákveður, að fenginni lýsingu úrgangshafa á úrgangi, í hvaða flokk úrgangur fellur skv. gjaldskránni. Flutningsaðilar á úrgangi á móttökustað ábyrgjast greiðslu gjalda skv. gjaldskrá eða gera grein fyrir með óyggjandi hætti, almennt eða í einstöku tilfelli, hver sé ábyrgur úrgangshafi hvers farms. Íbúar Seyðisfjarðar geta afhent allt að 3 m³ af forflokkuðum úrgangi á ári án þess að greiða sérstaklega fyrir það, enda sé um heimilisúrgang að ræða.
5. gr.
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar er heimilt að gera sérstaka samninga um móttöku úrgangs og aðra þjónustuþætti, þegar um er að ræða afmarkaðri eða víðtækari þjónustu en gjaldskrá tekur til.
6. gr.
Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjárnámi hjá úrgangshafa án undangengins dóms, sbr. lokamálslið 4. mgr. 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003, sbr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989. Gjöld eru tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga, sbr. lokamálsgrein 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
7. gr.
Gjaldskrá þessi, er samin af bæjarstjórn með stoð í 8. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs á Seyðisfirði, nr. 661/2016, sbr. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
Gjaldskráin er samþykkt af bæjarstjórn Seyðisfjarðar 11. desember 2019. Gjaldskrá þessi tekur gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Seyðisfjarðarkaupstað nr. 1247/2017.
Seyðisfirði, 1. maí 2020.
Aðalheiður Borgþórsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 5. maí 2020