Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Húsnæðismál, Lífeyrissjóðir
Undirritunardagur
28. júní 2026
Útgáfudagur
6. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 71/2026
28. júní 2026
LÖG
um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um það þegar viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar, sbr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, er ráðstafað skattfrjálst til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin eru vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
2. gr. Skilyrði til að ráðstafa séreignarsparnaði.
Rétthafa séreignarsparnaðar er heimilt að nýta viðbótariðgjald í samanlagt tíu ár, að tilteknu hámarki á ári, sbr. 3. gr., til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin eru til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Skilyrði er að lánið sé tryggt með veði í íbúðarhúsnæðinu og að rétthafi hafi ekki nýtt skattfrjáls úrræði um að ráðstafa viðbótariðgjaldi til öflunar íbúðarhúsnæðis í samanlagt tíu ár. Með eigin notum er átt við íbúðarhúsnæði þar sem rétthafi er með skráð lögheimili.
Heimildin tekur til rétthafa sem er skráður fyrir að minnsta kosti 30% eignarhlut í íbúðarhúsnæði skv. 1. mgr.
3. gr. Hámarksfjárhæðir.
Heimild rétthafa skv. 2. gr. takmarkast við allt að 4% framlag hans, að hámarki 333.000 kr., og allt að 2% framlag launagreiðanda, að hámarki 167.000 kr., af iðgjaldsstofni, samanlagt að hámarki 500.000 kr. fyrir hverja tólf mánuði á almanaksári, samtals í 120 mánuði að teknu tilliti til 2. mgr.
Hámarksfjárhæðir 1. mgr. skulu í upphafi hvers árs taka breytingum í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Breytingar á hámarksfjárhæðum skal birta með auglýsingu ráðherra í lok hvers árs.
Greiðsla inn á lán getur aldrei numið hærri fjárhæð en sem nemur inneign rétthafa vegna greiddra iðgjalda á hverjum tíma.
Framlag rétthafa skal ekki vera lægra en framlag launagreiðanda.
4. gr. Umsókn og ráðstöfun.
Umsókn rétthafa um greiðslu inn á lán skv. 1. mgr. 2. gr. skal beint til ríkisskattstjóra á því formi sem hann ákveður. Umsókn gildir um iðgjöld sem greidd eru eftir að hún berst.
Umsækjandi skal í umsókn framvísa gögnum sem sýna fram á að skilyrði 2. gr. séu uppfyllt. Ríkisskattstjóra er heimilt að byggja á upplýsingum frá umsækjanda og viðeigandi stofnunum, til að mynda úr fasteignaskrá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, til staðfestingar á að skilyrði 2. gr. séu uppfyllt. Þá skulu vörsluaðilar og lánveitendur, eftir því sem við á, að beiðni ríkisskattstjóra staðfesta hvort þær upplýsingar sem umsækjandi veitir séu réttar.
Umsækjanda er skylt að upplýsa ríkisskattstjóra um breytingar á forsendum umsóknar, svo sem um lán og vörsluaðila séreignarsparnaðar.
Ríkisskattstjóri skal halda skrá yfir nauðsynlegar upplýsingar vegna greiðslu viðbótariðgjalda inn á höfuðstól lána sem umsækjendur hafa valið. Skráin skal m.a. byggð á eftirfarandi:
- Upplýsingum frá umsækjanda sem staðfestar hafa verið af vörsluaðilum séreignarsparnaðar og lánveitendum, eftir því sem við á.
- Upplýsingum frá lánveitendum um greiðsluskilmála lána.
- Upplýsingum sem ríkisskattstjóri ræður yfir á grundvelli skattframkvæmdar, eftir því sem nauðsynlegt er.
Að uppfylltum skilyrðum 2. gr. og að fengnum upplýsingum skv. 4. mgr. miðlar ríkisskattstjóri nauðsynlegum upplýsingum til viðeigandi vörsluaðila sem staðfestir greiðslusögu viðbótariðgjalda. Þá sendir vörsluaðili tilkynningu til viðeigandi lánveitanda ásamt greiðslu á viðbótariðgjöldum rétthafa sem lánveitandi ráðstafar inn á höfuðstól valinna lána og afborgana eftir því sem við á. Ef lán eru í vanskilum fer um greiðsluna eftir hefðbundinni greiðsluröð samkvæmt lánaskilmálum.
Vörsluaðilar skulu ráðstafa greiddum viðbótariðgjöldum til lánveitenda eigi sjaldnar en fjórum sinnum á ári enda hafi rétthafi ekki gert hlé á greiðslu viðbótariðgjalda. Vörsluaðilum er þó heimilt að ráðstafa greiddum viðbótariðgjöldum til lánveitenda sjaldnar en á þriggja mánaða fresti enda hafi valin lán umsækjenda færri en fjóra gjalddaga á ári. Vörsluaðilar skulu ráðstafa viðbótariðgjöldum til lánveitenda á þeim tíma þegar iðgjöld geta farið inn á höfuðstól valinna lána í skilum skv. 5. mgr. og á gjalddaga afborgana eftir því sem við á. Upplýsingar um greiðslur viðbótariðgjalda skulu sendar rafrænt til ríkisskattstjóra. Vörsluaðili skal senda rétthafa yfirlit um ráðstöfun viðbótariðgjalda samkvæmt lögum þessum í samræmi við III. kafla laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, þó eigi sjaldnar en einu sinni á ári.
Verði rof hjá rétthafa á greiðslu iðgjalda áður en tímabili skv. 1. mgr. 3. gr. er náð þarf rétthafi að sækja um heimildina að nýju ef hann hyggst nýta rétt sinn til að ráðstafa inn á lán.
5. gr. Ýmis ákvæði.
Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með ráðstöfun iðgjalda samkvæmt lögum þessum.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd laganna, m.a. um umsóknarferli, ráðstöfun, eftirlit og kostnað.
Skuldheimtumönnum er óheimilt að krefjast þess að skuldarar ráðstafi séreignarsparnaði samkvæmt lögum þessum.
6. gr. Kæruheimild.
Ákvarðanir ríkisskattstjóra sem teknar eru á grundvelli laga þessara eru kæranlegar til yfirskattanefndar. Um kærufrest og málsmeðferð fer eftir ákvæðum laga um yfirskattanefnd.
7. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. október 2026.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. og 2. málsl. 1. mgr. 4. gr. skulu lög þessi gilda frá 1. janúar 2026 um umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026.
Breytingar á hámarksfjárhæðum skv. 2. mgr. 3. gr. skulu birtar með auglýsingu ráðherra í fyrsta sinn í árslok 2026 vegna ráðstöfunar á árinu 2027.
8. gr. Breytingar á öðrum lögum.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:
- Lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, nr. 111/2016:
- Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
- Í stað orðanna „á samfelldu tíu ára tímabili“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: í samanlagt tíu ár.
- Í stað orðanna „hins samfellda tíu ára tímabils“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: ráðstöfunarinnar.
- 3. málsl. 3. mgr. fellur brott.
- Í stað 4. og 5. málsl. 3. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Verði rof hjá rétthafa á greiðslu iðgjalda áður en tímabili 1. mgr. er náð þarf rétthafi að sækja um heimildina að nýju hyggist hann nýta rétt sinn til að ráðstafa iðgjöldum inn á lán.
- Orðin „skipti á íbúð fari fram innan tíu ára tímabilsins, sbr. 3. mgr., og að“ í 2. málsl. 4. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „hinu tíu ára samfellda tímabili lýkur“ í 3. málsl. 4. mgr. kemur: samtals 120 mánaða ráðstöfunartíma er náð.
- Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
-
- Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
- Í stað orðanna „samfellds tíu ára tímabils“ í 1. málsl. kemur: nýtingar úrræða laga þessara.
- Í stað orðanna „tíu ára samfelldu tímabili“ í 3. málsl. kemur: tíu ára tímabili ráðstöfunar samkvæmt lögum þessum.
- Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
-
- Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:
- Í stað orðanna „á samfelldu tíu ára tímabili“ í 1. málsl. kemur: í samtals 120 mánuði að teknu tilliti til 2. málsl.
- Á eftir 1. málsl. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Hámarksfjárhæðir skv. 1. málsl. skulu í upphafi hvers árs taka breytingum í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Breytingar á hámarksfjárhæðum skal birta með auglýsingu ráðherra.
- Í stað orðsins „samfelldu“ í 1. og 3. málsl. 3. mgr. 8. gr. laganna kemur: samanlögðu.
- Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 4. gr. laganna:
- Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003: Eftirfarandi breytingar verða á 12. tölul. 28. gr. laganna:
- Við 1. mgr. bætist: og laga um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.
- Í stað orðanna „á samfelldu tíu ára tímabili, sbr. 4. gr. laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: í samanlagða 120 mánuði, sbr. 4. gr. laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð og 3. gr. laga um ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.
- Á eftir 1. málsl. 2. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Hámarksfjárhæðir skv. 1. málsl. skulu í upphafi hvers árs taka breytingum í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Breytingar á framangreindum hámarksfjárhæðum skal birta með auglýsingu ráðherra í lok hvers árs í fyrsta sinn 2026.
Gjört á Bessastöðum, 28. júní 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Daði Már Kristófersson.
A deild — Útgáfudagur: 6. júlí 2026