Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Reykjavík, Gæludýr

Undirritunardagur

15. nóvember 2023

Útgáfudagur

29. nóvember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1278/2023

15. nóvember 2023

GJALDSKRÁ

fyrir hundahald í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Af hundum í Reykjavíkurborg skal Dýraþjónusta Reykjavíkur innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standi undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um hundahald í Reykjavíkurborg nr. 355/2022.

2. gr.

Af hundum í Reykjavíkurborg skal innheimta árlegt þjónustu- og eftirlitsgjald, hundagjald, samkvæmt samþykkt um hundahald í Reykjavíkurborg árið eftir að hundur er skráður í fyrsta sinn og síðan árlega eftir það. Ekkert gjald er innheimt við skráningu hunds.

Árlegt hundagjald kr. 17.200
Skráningargjald kr. 0

Skrá skal alla hunda í Reykjavíkurborg, einnig þá sem undanþegnir eru árlegu hundagjaldi samkvæmt samþykkt um hundahald í Reykjavíkurborg.

3. gr.

Heimilt er að veita allt að 30% afslátt af árlegu gjaldi hafi viðkomandi hundaeigandi sótt námskeið um hundahald sem viðurkennt er af Dýraþjónustu Reykjavíkur.

4. gr.

Við afhendingu handsamaðs óskráðs hunds ber að innheimta kr. 37.230 handsömunargjald. Að auki skal eigandi greiða þann kostnað sem fellur til vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Við afhendingu handsamaðs hunds, sem skráður er í Reykjavíkurborg eða hjá öðru sveitarfélagi, skal einungis innheimtur sá kostnaður sem fallið hefur til vegna dvalar og geymslu viðkomandi hunds. Hafi skráður hundur verið handsamaður þrisvar sinnum eða oftar skal eigandi þó greiða handsömunargjald sem og kostnað vegna dvalar og geymslu viðkomandi hunds.

5. gr.

Gjalddagi samkvæmt 2. og 3. gr. er 1. mars og eindagi 1. maí ár hvert. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af borgarstjórn Reykjavíkur 7. nóvember 2023, með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og 24. gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra staðfestist hér með og öðlast gildi 1. janúar 2024. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 999/2023.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 15. nóvember 2023.

Dagur B. Eggertsson.

B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2023

Tengd mál