Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Matvæli
Undirritunardagur
29. nóvember 2024
Útgáfudagur
3. desember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1408/2024
29. nóvember 2024
REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð nr. 237/2023 um gildistöku framkvæmdarreglna framkvæmdastjórnarinnar um vernd heita á víni skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliðir svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/905 frá 15. mars 2024 um að veita heitinu „Rosalejo“ (VUT) vernd skv. 99. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1308/2013. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 251/2024 frá 25. október 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 621.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2024.
Bjarni Benediktsson.
Svava Pétursdóttir.
B deild - Útgáfud.: 3. desember 2024