Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Kaldrananeshreppur
Málaflokkur
Vatnamál, Strandasýsla
Undirritunardagur
10. desember 2025
Útgáfudagur
14. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1714/2025
10. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir Drangsnesvatnsveitu, Kaldrananeshreppi.
Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps hefur sett Drangsnesvatnsveitu eftirfarandi gjaldskrá í samræmi við reglugerð nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga.
1. gr.
Greiða skal árlega vatnsgjald til Kaldrananeshrepps af öllum fasteignum er notið geta vatns frá vatnsveitunni. Gjaldið skal vera 0,3% af gjaldstofni fasteignagjalds af eignum sem falla undir a-lið 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga og 0,4% af gjaldstofni eigna sem falla undir b- og c-lið sömu lagagreinar. Hámarksgjald á hverja eign skv. a-lið skal þó vera 33.700 kr. Lágmarksgjald skv. a- og b-lið skal vera 22.400 kr.
2. gr.
Í fyrirtækjum og annars staðar þar sem vatn er notað til annars en venjulegra heimilisþarfa, vegna atvinnustarfsemi sem í þeim er rekin eða af öðrum ástæðum skal auk vatnsgjalds greiða sérstakt gjald, aukavatnsgjald, 19 kr. fyrir hvern rúmmetra vatns, sbr. reglugerð nr. 401/2005.
Verði mælingu vatnsins eigi komið við skal greiða aukavatnsgjald sem hér segir:
- Fiskverkun: 770 kr. fyrir hvert tonn af hráefni sem fer í vinnslu.
- Grásleppuhrognaverkun: 570 kr. fyrir hverja verkaða tunnu.
- Endurgjald hafnarsjóðs, vegna vatnsnotkunar 895.500 kr. á ári.
3. gr.
Heimæðagjald skv. reglugerð nr. 401/2005 skal vera 2.380 kr. fyrir hvern rúmmetra húss, miðað við utanmál þó að lágmarki 415.350 kr.
4. gr.
Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatts og innheimtu þeirra hagað á sama hátt. Gjalddagar aukavatnsgjalds skv. b-lið skulu vera ársfjórðungslega, fyrst 1. apríl fyrir mánuðina janúar til mars sama ár.
5. gr.
Gjaldskrá þessi sem sett er með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1812/2024.
Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Kaldrananeshrepps 10. desember 2025.
Drangsnesi, 10. desember 2025.
F.h. Kaldrananeshrepps,
Finnur Ólafsson oddviti.
B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026