Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Persónuvernd

Málaflokkur

Persónuvernd

Undirritunardagur

30. nóvember 2006

Útgáfudagur

18. desember 2006

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1042/2006

30. nóvember 2006

REGLUR

um breyting á reglum nr. 698/2004 um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga.

1. gr.

4. tl. 1. mgr. 7. gr. reglnanna orðist svo:

4. Söfnun og miðlun persónuupplýsinga um fjárhagsstöðu og lánstraust einstaklinga. Ef slík vinnsla fer hins vegar aðeins fram í þágu tölfræðilegs mats á lánshæfi einstaklinga, þ.e. til vinnslu lánshæfiseinkunnar, er hún ekki háð leyfi Persónuverndar, byggi hún á upplýstu og óþvinguðu samþykki hinna skráðu.

2. gr.

Breyting þessi tekur þegar gildi.

Persónuvernd, 30. nóvember 2006.

Páll Hreinsson stjórnarformaður.

Valur Árnason. Svana H. Björnsdóttir. Ólafur Garðarsson.

B deild - Útgáfud.: 18. desember 2006

Tengd mál