Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Alþingi
Undirritunardagur
17. janúar 2025
Útgáfudagur
17. janúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1/2025
17. janúar 2025
FORSETABRÉF
um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 4. febrúar 2025.
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 4. febrúar 2025.
Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni er hefst kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 17. janúar 2025.
Halla
Tómasdóttir.
(L.
S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild - Útgáfud.: 17. janúar 2025