Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip

Undirritunardagur

27. maí 2020

Útgáfudagur

28. maí 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 512/2020

27. maí 2020

REGLUGERÐ

um (3.) breytingu á reglugerð nr. 680/2004 um vinnu- og hvíldartíma skipverja á farþegaskipum og flutningaskipum.

1. gr.

Við 17. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Með reglugerð þessari eru innleidd ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/54/ESB frá 26. nóvember 2013 um tilteknar skyldur fánaaðildarríkis til að fara að og framfylgja samþykktinni um vinnuskilyrði farmanna, 2006. Tilskipunin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2020, frá 7. febrúar 2020. Tilskipunin er birt með viðauka við reglugerð þessa.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 7. gr. og 17. gr. laga nr. 76/2001, um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, með síðari breytingum, og 8. gr. sjómannalaga nr. 35/1985, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 27. maí 2020.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Eggert Ólafsson.

VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 28. maí 2020

Tengd mál