Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Mennta- og menningarmálaráðuneytið (2009-2015)
Málaflokkur
Vörumerki
Undirritunardagur
9. desember 2021
Útgáfudagur
10. desember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1419/2021
9. desember 2021
AUGLÝSING
um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja.
1. gr. Gildissvið.
Í samræmi við 16. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki með síðari breytingum og ákvæði Nice-samningsins frá 15. júní 1957 um alþjóðlega flokkun vöru og þjónustu vegna skráningar vörumerkja með síðari breytingum, gildir eftirfarandi flokkaskrá fyrir vörur og þjónustu vegna skráningar vörumerkja. Flokkaskráin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Flokkaskráin er í samræmi við 11. útgáfu alþjóðlegu skrárinnar um flokkun vöru og þjónustu við skráningu vörumerkja samkvæmt Nice-samningnum sem tók gildi 1. janúar 2017 og þær breytingar sem átt hafa sér stað frá þeim tíma. Flokkaskráin er uppfærð með rafrænum hætti um hver áramót.
2. gr. Breytingar 1. janúar 2022.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á íslenskri þýðingu á yfirskriftum flokkaskrárinnar frá og með 1. janúar 2022.
- Í stað orðsins „gervikaffi“ í flokki 30 kemur: vörur sem komið geta í stað þeirra.
- Í stað orðanna „önnur óáfeng efni til drykkjargerðar“ í flokki 32 kemur: önnur efni til gerðar óáfengra drykkja.
3. gr. Gildistaka og brottfall.
Auglýsing þessi gildir frá og með 1. janúar 2022. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um flokkun vöru og þjónustu vegna vörumerkja nr. 1251/2020.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 9. desember 2021.
Áslaug
Arna
Sigurbjörnsdóttir
vísinda-,
iðnaðar-
og
nýsköpunarráðherra.
Páll Magnússon.
Fylgiskjal.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 10. desember 2021