Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
9. apríl 2026
Útgáfudagur
24. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 402/2026
9. apríl 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:
Deiliskipulagsbreyting, Írafossstöð, aukið byggingarmagn.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Írafossstöðvar. Í breytingunni felst að bætt er við byggingarreit fyrir geymslu. Í húsinu verður rými til geymslu á búnaði og eins verður þar aðstaða til flokkunar og geymslu á úrgangi, en í dag er þetta allt utandyra. Skipulagssvæði breytingar er um 1.300 m².
Samþykkt í sveitarstjórn 18. mars 2026.
Deiliskipulagsbreyting, Grænahlíð, opið svæði, L233882, leiðréttar götur.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til 2. áfanga íbúðarbyggðar í landi Efri-Brúar, L233882. Breytingin felur í sér leiðréttingu á legu gatna til samræmis við framkvæmdir á vettvangi og hefur ekki áhrif á skilmála gildandi deiliskipulags.
Samþykkt í sveitarstjórn 18. febrúar 2026.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 9. apríl 2026.
F.h. skipulagsfulltrúa Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Nanna Jónsdóttir framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 24. apríl 2026