Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Akraneskaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Akranes
Undirritunardagur
7. júlí 2025
Útgáfudagur
18. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 824/2025
7. júlí 2025
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akraneskaupstað.
Suðurgata 126.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti 10. júní 2025 breytingu á deiliskipulagi Sementsreits, vegna lóðar Suðurgötu 126. Í breytingunni felst að heimilt verður að byggja við íbúðarhúsnæði á lóð skilgreint sem B-matshluti ásamt því að heimilt verður að byggja bifreiðageymslu allt að 39 fm sem skilgreint er sem C-byggingarreitur.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Akranesi, 7. júlí 2025.
Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 18. júlí 2025