Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

8. maí 2024

Útgáfudagur

10. september 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 38/2024

8. maí 2024

AUGLÝSING

um tvær bókanir frá árinu 2016 um breytingar á samþykktinni um alþjóðaflugmál (Chicago-samninginn).

Hinn 15. júlí 2021 voru aðalframkvæmdastjóra Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) afhent fullgildingarskjöl Íslands vegna tveggja bókana sem gerðar voru í Montreal 6. október 2016, um breytingar á samþykktinni um alþjóðaflugmál frá 7. desember 1944 (Chicago-samninginn), sbr. Samninga Íslands við erlend ríki nr. 49 þar sem samningurinn er birtur, og 50, og auglýsingar í C-deild Stjórnartíðinda nr. 18/1975, 8/1979, 1/1981, 1/1988, 10/1990, 21/1992, 17/1997, 10/2002, 44/2002, 56/2004, 2/2005, 3/2005 og 6/2005.

Bókanirnar breyta a-lið 50. gr. og 56. gr. samþykktarinnar og eru birtar sem fylgiskjal 1 og 2 með auglýsingu þessari.

Tilkynnt verður um gildistöku bókananna síðar.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 8. maí 2024.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 10. september 2024

Tengd mál