Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Menntamál, Atvinnuréttindi
Undirritunardagur
24. nóvember 2025
Útgáfudagur
1. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 79/2025
24. nóvember 2025
LÖG
um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, nr. 26/2010 (meðalhófsprófun, EES-reglur).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Lög þessi gilda einnig um meðalhófsprófun sem framkvæma skal áður en ný lög eða stjórnvaldsfyrirmæli um lögverndun starfs eru sett eða gildandi lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum er breytt.
2. gr.
- Í stað orðsins „tilskipunina“ í 1. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 3. gr. og 1. málsl. 2. mgr. 7. gr. laganna kemur: tilskipun 2005/36/EB.
- Í stað orðsins „tilskipunarinnar“ í 3. mgr. 3. gr., 1. málsl. 1. mgr. 4. gr., 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr., 1. málsl. 2. mgr. og 5. mgr. 9. gr. laganna kemur: tilskipunar 2005/36/EB.
- Í stað orðsins „tilskipuninni“ í 3. mgr. 7. gr., 1. mgr. 8. gr. og 1. málsl. 2. mgr. 9. gr. laganna kemur: tilskipun 2005/36/EB.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
- Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ráðherra sem í hlut á skal framkvæma meðalhófsprófun, í samræmi við 7. gr. tilskipunar (ESB) 2018/958 um meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreina, við undirbúning á frumvarpi til nýrra laga eða stjórnvaldsfyrirmælum sem fela í sér lögverndun starfs. Sama á við um breytingu á gildandi lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum sem kveða á um lögverndun starfs. Ráðherra sem í hlut á skal skrá rökstuðning fyrir því að ákvæðin séu réttlætanleg og standist meðalhóf í gagnagrunn yfir lögverndaðar starfsgreinar.
Ráðherra er heimilt að setja nánari fyrirmæli í reglugerð um innleiðingu og framkvæmd tilskipunar (ESB) 2018/958, þar á meðal um framkvæmd meðalhófsprófunar, upplýsingaskipti milli aðildarríkja og kröfur um skráningu upplýsinga í gagnagrunn yfir lögverndaðar starfsgreinar. - Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Samræming, reglugerð, meðalhófsprófun o.fl.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Með lögum þessum er innleidd tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/958 frá 28. júní 2018 um meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreina, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71 frá 11. nóvember 2021, bls. 236–245. Tilskipun (ESB) 2018/958 var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2021, frá 24. september 2021, sem birt var 22. febrúar 2024 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17, bls. 30, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest. - Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Innleiðing.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 24. nóvember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Logi Már Einarsson.
A deild — Útgáfudagur: 1. desember 2025