Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið (2011-2018)
Málaflokkur
Félagsmál, Útlendingar
Undirritunardagur
12. janúar 2017
Útgáfudagur
8. febrúar 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 110/2017
12. janúar 2017
REGLUR
um (1.) breytingu á reglum nr. 203/2016 um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, í sérstökum tilvikum, við erlenda ríkisborgara, utan EES, sem ekki eiga lögheimili á Íslandi.
1. gr.
1. mgr. fylgiskjalsins „Viðmið um fjárhagsaðstoð“ verður svohljóðandi:
Greiðslur til einstaklings sem nýtur ekki lengur þjónustu á vegum Útlendingastofnunar sem veitt er á vegum sveitarfélags samkvæmt 1. tl. 2. gr., miðast við reglur sveitarfélags um fjárhagsaðstoð. Fyrir aðra skulu eftirfarandi viðmið notuð eftir því sem við á hverju sinni:1
2. gr.
3. mgr. fylgiskjalsins „Viðmið um fjárhagsaðstoð“, sbr. 3. gr. reglnanna, verður svohljóðandi:
Taflan miðast við greiðslur fyrir einn mánuð:
| 1. | 2. | 3. | 4. | |||
| 100% | 35% | 30% | 15% | |||
| Einstaklingur | Grunnfjárhæð | x 1,0 | 155.774 kr. | 54.521 kr. | 46.732 kr. | 23.366 kr. |
| Tveir í fjölskyldu | " | x 1,6 | 249.238 kr. | 87.233 kr. | 74.772 kr. | 37.386 kr. |
| Þrír í fjölskyldu | " | x 1,8 | 280.393 kr. | 98.138 kr. | 84.118 kr. | 42.059 kr. |
| Fjórir í fjölskyldu | " | x 2,0 | 311.548 kr. | 109.042 kr. | 93.464 kr. | 46.732 kr. |
| Greiðsla á dag fyrir einstakling | 5.192 kr. | 1.817 kr. | 1.558 kr. | 779 kr. | ||
3. gr.
Reglur þessar, sem settar eru með stoð í 1. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, með síðari breytingum, taka þegar gildi.
Velferðarráðuneytinu, 12. janúar 2017.
Þorsteinn
Víglundsson
félags-
og
jafnréttismálaráðherra.
Bolli Þór Bollason.
B deild - Útgáfud.: 8. febrúar 2017