Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

22. mars 2018

Útgáfudagur

13. apríl 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 371/2018

22. mars 2018

REGLUGERÐ

um breytingar á reglugerð nr. 202/2007 um flokkun loftfara og lofthæfivottorða og reglugerð nr. 854/2016 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra.

I. KAFLI Breytingar á reglugerð nr. 202/2007.

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Orðskýringar.

Eftirfarandi orð skulu hafa eftirfarandi merkingu í reglugerð þessari:

EASA-reglugerðin: Reglugerð nr. 812/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, EASA, sem innleiðir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008 um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu og niðurfellingu tilskipunar ráðsins nr. 91/670/EBE, reglugerð (EB) nr. 1592/2002 og tilskipun 2004/36/EB.

2. gr.

5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Nánari flokkun EASA-loftfara.

Flokkar loftfara sem falla undir gildissvið EASA-reglugerðarinnar:

  1. Mjög léttar flugvélar (Very Light Aeroplanes – CS-VLA).
  2. Léttar sportflugvélar (Light Sport Aeroplanes – CS-LSA)
  3. Litlar flugvélar (Small Aeroplanes – CS-23).
  4. Stórar flugvélar (Large Aeroplanes – CS-25).
  5. Mjög léttar þyrilvængjur (Very Light Rotorcraft – CS-VLR).
  6. Lítil þyrla (Small Rotorcraft – CS-27).
  7. Stór þyrla (Large Rotorcraft – CS-29).
  8. Svifflug / Mótorsvifflug (Sailplanes / Powered Sailplanes – CS-22).
  9. Loftbelgir (Baloons – CS-31TGB, CS-31HB, CS-31GB).
  10. Loftskip (Airship).

Nánari skilgreining og afmörkun á hverjum flokki loftfara er í vottunarkröfum Flugöryggisstofnunar Evrópu (CS) sem eru aðgengilegar á heimasíðu stofnunarinnar, www.easa.europa.eu.

Litlar flugvélar geta verið vottaðar með vísan til notkunar í normal-flokki, nytja-flokki (e. utility), og listflugs-flokki (e. aerobatic) eða í einum eða fleiri flokkum ef kröfum í hverjum flokki er fullnægt.

3. gr.

Í „B. Loftför skv. 2. lið 1. mgr. 4. gr.“ í töflu í 6. gr. reglugerðarinnar bætist við eftirfarandi flokkur:

D. Lofthæfivottorð.

Loftför með lofthæfivottorð sem gefin eru út fyrir loftför sem fullnægja kröfum viðauka 8 við Chicago-samninginn, framleidd eru af viðurkenndum framleiðanda og Samgöngustofa metur gild.

II. KAFLI Breyting á reglugerð nr. 854/2016.

4. gr.

4. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

III. KAFLI Gildistaka.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 12. gr. og 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 22. mars 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 13. apríl 2018

Tengd mál