Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
17. apríl 2018
Útgáfudagur
4. maí 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 445/2018
17. apríl 2018
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 500/2011 um doktorsnám við félagsvísindasvið Háskóla Íslands.
1. gr.
Fyrirsögn II. kafla reglnanna orðast svo: Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.
2. gr.
Í stað orðanna „félags- og mannvísindadeild“ í 1. mgr. 20. gr., 1. mgr. 22. gr., 1. og 2. mgr. 23. gr., 1. mgr. 24. gr. og 2. mgr. 25. gr. reglnanna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.
3. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu félagsvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast gildi 1. júlí 2018.
Háskóla Íslands, 17. apríl 2018.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 4. maí 2018