Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármálaeftirlitið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Tryggingar, Vátryggingar

Undirritunardagur

19. desember 2019

Útgáfudagur

9. janúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1363/2019

19. desember 2019

REGLUR

um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 30. september til 30. desember 2019.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

2. gr. Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

3. gr. Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1902 frá 7. nóvember 2019 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2019 til 30. desember 2019 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Fjármálaeftirlitið til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 293, þann 14. nóvember 2019, bls. 5-100:

https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/TXT/?uri=uriserv:OJ.L_.2019.293.01.0005.01.ENG.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Fjármálaeftirlitinu, 19. desember 2019.

Unnur Gunnarsdóttir.

Anna Mjöll Karlsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 9. janúar 2020

Tengd mál