Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Múlaþing

Málaflokkur

Múlaþing, Leikskólar

Undirritunardagur

23. júní 2025

Útgáfudagur

17. júlí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 820/2025

23. júní 2025

GJALDSKRÁ

leikskóla í Múlaþingi.

1. gr.

Almennt tímagjald er 4.487 kr. á mánuði.

Tímagjald fyrir forgangshópa er 2.989 kr. á mánuði.

Tímagjald fyrir leikskóladvöl umfram átta stundir er 11.573 kr. á mánuði fyrir foreldra í sambúð og 7.718 kr. á mánuði fyrir einstæða foreldra.

Systkinaafsláttur er 50% fyrir annað barn og frítt er fyrir þriðja barn. Systkinaafsláttur er einnig veittur ef annað barn er hjá dagforeldri.

Sektargjald er 2.893 kr.

Foreldrar giftir / sambúð Einstæðir foreldrar
Dvalarstundir Almennt gjald kr. Afsláttargjald kr., 2. barn 50%  Forgangsgjald kr. Afsláttargjald kr., 2. barn 50% 
4 tímar 17.948 8.974 11.956 5.978
5 tímar 22.435 11.218 14.945 7.473
6 tímar 26.922 13.461 17.934 8.967
7 tímar 31.409 15.705 20.923 10.462
8 tímar 35.896 17.948 23.912 11.956
9 tímar 47.469 23.735 31.630 15.815

2. gr.

Mánaðargjald fyrir skólamáltíðir er hér sem segir:

Morgunverður 1.247 kr. 
Ávaxtahressing 1.123 kr. 
Hádegisverður 5.194 kr. 
Síðdegishressing 2.366 kr. 

Ekki er veittur afsláttur af fæði.

3. gr.

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 27. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og öðlast gildi 1. ágúst 2025. Um leið falla úr gildi gjaldskrár nr. 1469/2024, nr. 1468/2024, nr. 1470/2024 og nr. 1471/2024. Samþykkt í sveitarstjórn Múlaþings 12. mars 2025.

Múlaþingi, 23. júní 2025.

Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 17. júlí 2025

Tengd mál