Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Félagsmálaráðuneytið (2019-2021)
Málaflokkur
Félagsmál, Húsnæðismál
Undirritunardagur
24. júlí 2020
Útgáfudagur
19. ágúst 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 804/2020
24. júlí 2020
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 183/2020 um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir.
1. gr.
3. málsl. 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Við mat á beiðni um þinglýsingu skuldbindinga á almenna íbúð skal miðað við að fjárhæð slíkra skuldbindinga fari að jafnaði ekki yfir það hlutfall sem lánsfjármögnun átti að nema af áætluðu stofnvirði íbúðar samkvæmt samþykktri umsókn um stofnframlag, þó að teknu tilliti til breytinga sem orðið hafa á fjárhæðum hámarksbyggingarkostnaðar frá samþykki umsóknar.
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 9. mgr. 16. gr. laga um almennar íbúðir nr. 52/2016, tekur þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 24. júlí 2020.
Ásmundur Einar Daðason.
Gunnhildur Gunnarsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 19. ágúst 2020