Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
25. nóvember 2021
Útgáfudagur
9. desember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1411/2021
25. nóvember 2021
REGLUR
um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals vegna skaðatryggingar.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um dreifingu skaðatrygginga samkvæmt 10. gr. laga nr. 30/2004, um vátryggingarsamninga.
2. gr. Staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals vegna skaðatryggingar.
Reglur þessar eru settar til að innleiða reglugerð (ESB) 2017/1469 frá 11. ágúst 2017 sem mælir fyrir um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarafurð. Skal ákvæðum hennar fylgt við samningu og miðlun staðlaðs upplýsingaskjals vegna skaðatryggingar, sbr. 10. gr. laga nr. 30/2004, um vátryggingarsamninga.
3. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1469 frá 11. ágúst 2017 um staðlað form fyrir framsetningu upplýsingaskjals um vátryggingarafurð, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 304/2019 frá 13. desember 2019, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 14 frá 5. mars 2020, bls. 58. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 31. mars 2021, bls. 3-7.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 30/2004, um vátryggingarsamninga, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 25. nóvember 2021.
|
Ásgeir
Jónsson seðlabankastjóri. |
Páll
Friðriksson framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 9. desember 2021