Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Málaflokkur
Almannatryggingar
Undirritunardagur
16. desember 2025
Útgáfudagur
17. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 85/2025
16. desember 2025
LÖG
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (eingreiðsla).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þeir greiðsluþegar sem hafa fengið greiddan örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri eða ellilífeyri eða fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur á árinu 2025 skulu fá eingreiðslu í desember, enda hafi þeir verið með skráð lögheimili hér á landi 1. nóvember 2025. Hið sama á við um þá einstaklinga sem fengu greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð á árinu 2025.
Full eingreiðsla skv. 1. mgr. skal vera 73.390 kr. Við útreikning eingreiðslu skv. 1. mgr. skal greiðsluþegi hafa almennt frítekjumark sem nemur 1.200.000 kr. Fjárhæð eingreiðslu skv. 1. mgr. skal lækka um 3,3% af tekjugrunni greiðsluþega umfram frítekjumark. Um meðferð tekna samkvæmt þessu ákvæði fer skv. 1., 2., 6. og 8. mgr. 30. gr. laganna. Hafi greiðsluþegi fengið eina eða fleiri af þeim greiðslum sem taldar eru upp í 1. mgr. hluta af árinu 2025 skal eingreiðsla skv. 1. mgr. vera í hlutfalli við fjölda þeirra mánaða sem viðkomandi fékk greiðslur á árinu. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal hvorki teljast til tekna greiðsluþega né leiða til skerðingar annarra greiðslna samkvæmt lögum þessum. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal ekki greidd til dánarbúa. Eingreiðsla skv. 1. mgr. skal innt af hendi eigi síðar en 23. desember 2025. Um endurreikning eingreiðslu skv. 1. mgr. sem og um meðferð of- eða vangreiðslna fer skv. 3. og 4. mgr. 33. gr., sbr. 34. gr.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 16. desember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Inga Sæland.
A deild — Útgáfudagur: 17. desember 2025