Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

24. maí 2016

Útgáfudagur

13. júní 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 520/2016

24. maí 2016

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr.:

  1. 1. málsliður 1. mgr. orðast svo: Á háskólaþingi eiga sæti rektor, forsetar fræðasviða, deildarforsetar og formaður Stúdentaráðs.
  2. 3. málsliður 1. mgr. orðast svo: Varadeildarforseti situr háskólaþing í forföllum deildarforseta og varaformaður Stúdentaráðs í forföllum formanns Stúdentaráðs.
  3. Í stað orðanna „tveggja ára“ í 2. málslið 2. mgr. kemur: eins árs.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 24. maí 2016.

Jón Atli Benediktsson.

Halldór Jónsson.

B deild - Útgáfud.: 13. júní 2016

Tengd mál