Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál, Sóttvarnir

Undirritunardagur

16. mars 2021

Útgáfudagur

16. mars 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 286/2021

16. mars 2021

REGLUGERÐ

um (1.) breytingu á reglugerð nr. 161/2021 um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19

1. gr.

1. og 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar verða svohljóðandi:

Hafi einstaklingur við komuna til landsins undir höndum viðurkennt vottorð um ónæmisaðgerð vegna COVID-19 (alþjóðabólusetningarskírteinið) í samræmi við alþjóðaheilbrigðisreglugerð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er honum ekki skylt að fara í sýnatöku, sóttkví eða framvísa vottorði um neikvætt PCR-próf skv. 4. gr. Sama gildir um bólusetningarvottorð sem vottar um bólusetningu með bóluefni sem Lyfjastofnun Evrópu hefur mælst til að fái markaðsleyfi og sem uppfyllir leiðbeiningar sóttvarnalæknis um vottorð, svo sem um mat á vottorðum við landamæri og efni og form vottorða, t.a.m. um tungumál og hvaða upplýsingar vottorð skal innihalda, svo sem nafn, fæðingardag, ríkisfang, hvar og hvenær bólusetning fór fram, framleiðanda bóluefnis og upplýsingar um aðila ábyrgan fyrir útgáfu vottorðs. Ef bóluefni sem Lyfjastofnun Evrópu hefur mælst til að öðlist markaðsleyfi hefur hlotið sambærilegt markaðsleyfi í öðru landi og vottorð vottar um bólusetningu með því bóluefni skal slíkt vottorð jafnframt tekið gilt.

Hafi einstaklingur vottorð um rannsóknarniðurstöðu sem sýnir fram á að COVID-19 sýking sé afstaðin, er honum ekki skylt að fara í sýnatöku eða framvísa vottorði um neikvætt PCR-próf skv. 4. gr. enda uppfylli vottorðið annað af eftirfarandi skilyrðum:

  1. sýni jákvæða niðurstöður úr PCR-prófi sem er eldra en 14 daga gamalt, eða
  2. sýni fram á mótefni með mótefnaprófi sem framkvæmt er með ELISA-aðferð.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er á grundvelli 12., 13., 14. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.

Reglugerð þessi fellur úr gildi þann 30. apríl 2021.

Heilbrigðisráðuneytinu, 16. mars 2021.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 16. mars 2021

Tengd mál