Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Málaflokkur
Almannatryggingar
Undirritunardagur
30. mars 2026
Útgáfudagur
8. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 26/2026
30. mars 2026
LÖG
um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007 (launavísitala).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Í stað orðsins „launaþróun“ í 2. málsl. 62. gr. laganna kemur: þróun frá 1. júní 2025 á launavísitölu, sbr. lög um launavísitölu.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 30. mars 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Ragnar Þór Ingólfsson.
A deild — Útgáfudagur: 8. apríl 2026